Var varla kjaftur á Dominos þegar ég sótti slydduna mína. Sennilega flestir heima hjá sér að berjast við meltingartruflanir og of háan blóðþrýsting. I told you so!
Eins og með þorraviðbjóðinn þá fæ ég stundum á tilfinninguna að fólk þykist elska saltkjöt af ótta við álit annarra. Rétt eins og það sé óþjóðlegt að neita sér um óþverrann sem vesalingarnir fyrr á öldum neyddust til að setja ofan í sig.
Mér er andskotans sama. Þjóðhollusta snýst um að elska land okkar og tungu. Ekki skemmdar matvörur frá fyrri tíð. Þessu skylt er árátta íslenskra karla að hrúgast upp á fjöll og fyrnindi til að murka lífið úr litlum fuglum og sætum hreindýrum.