Mér skilst að Samfés heiti í raun Sleikfés. Að þar gangi allt út á að slumma sem flesta og safna símanúmerum. Come on! Þið eruð krakkar! Slakið aðeins á að verða fullorðin. Verðið dauð í sálinni fyrir tvítugt með þessu áframhaldi.
Minnir að í fyrra hafi umsjónaraðilar misst hökuna niður í gólf því stúlkurnar voru svo léttklæddar að það hálfa hefði verið nóg. Múgsefjun netsins sækir stöðugt harðar á viðkvæmar gagnfræðaskólasálir. Sjálfstæð hugsun er illa séð. Krakkar eiga að vera vitlausir. það er krafa dagsins.