Er orðinn enn forhertari í því að fara aldrei aftur einn og óvopnaður niður í miðbæ um helgarnætur. Einhverjir þrír aumingjar tóku sig til og réðust á náunga fyrir að fara á salernið á barnum Faktory.
Sök fórnarlambsins var að hafa farið í kynleiðréttingu. Hafði fæðst kona í röngum líkama og skipt um kyn. Slíkt má ekki. Það dregur úr karlmennsku okkar hinna sem fæddumst karlar. Ekki satt?
Eftir barsmíðarnar skreið gaurinn upp í leigubíl til þess eins að fá það framan í sig frá bílstjóranum að transgender væri geðveiki. Eða svo segir mamma leigarans sem býr í Svíþjóð. Og hún er „sérfræðingur“.
Sennilega snerust barsmíðarnar ekkert endilega um leiðrétt kyn fórnarlambsins. Það var bara góð afsökun til að ráðast á hann. Ætli það hafi ekki spilað meira inn í að hann var einn á ferð.
Svona ofbeldismenn eiga bágt og þjást af minnimáttarkennd vegna einhvers úr æsku eða eru kannski bara fæddir svona. Fara ekki í bæinn til að skemmta sér heldur til að berja fólk. Og telja eflaust ekki heldur eftir sér að hópnauðga konum á heimleið úr bænum.
Kannski er aprílgabbið um herskáa femínista ekki svo galin. Hópur hraustra valkyrja sem rífur eistun undan vesalingum sem herja á konur og kynskiptinga. Ég myndi kaupa happdrættismiða frá þeim.