Einhver illa vaknaður rumur lætur dæluna ganga gegn gengi asíuunglinga í anddyrinu á Smáralind og netið fer á hliðina … enn einu sinni. Ásakanir um rasisma og heimsku gaursins vaða súðum. Eins og náunginn sé eitthvert einangrað og einstakt tilvik á Íslandi.
Manngreyið er bara að lýsa gremju og ótta heillar þjóðar við mögulegri kínverskri innrás inn í landið með Huang Nubo í fararbroddi. Erum ekki öll jafn sátt og Samspillingin við að útlendingar eignist landið og miðin. Erlend fjárfesting er eitt. Erlend yfirráð eru annað.