Þrefað er um drög að nýrri stjórnarskrá á Alþingi. Löngu orðið ljóst að frumvarpið verður jarðað í nefnd fram á næsta kjörtímabil og svo endalega grafið. Ljótt að heyra vegna þess lýðræðilega ferlis sem hefur átt sér stað. Kinnhestur í andlit kjósenda.
En svo má ræða hvort þörf sé á nýrri stjórnarskrá í landi þar sem sjaldan hefur verið farið eftir núverandi (hvað þá öðrum lögum). Breyting á grunnlögum landsins breytir ekki siðlausu eðli landsmanna. Helmingur þjóðarinnar ætlar að kjósa hrunflokkana yfir sig í vor í þeirri vonleysu að fá 2007 aftur.
Hér ríkir engin samstaða um að byggja landið upp. Nema fyrir þá ríku. Við aumingjarnir megum éta það sem úti frýs. Á meðan eyðir þingið síðustu dögum kjörtímabilsins í röfl um stjórnarskrá sem engu máli skiptir.