Nýjasta nýtt er bindindi

Íslendingar eru sauðir upp til hópa.  Fyrir hrun gekk allt út á falleg og dýr heimili. Eftir hrun fór þetta sama pakk í Crossfit, hjólreiðar og hlaup.  Sixpack tók við af hönnuðum húsgögnum og Range Rover.

Nýjasta nýtt er að fara í áfengismeðferð og svo mæta í viðtal hjá einhverju glanstímariti eða blaði til að segja frá því.  Sérstaklega er þessi lífstílsbreyting vinsæl hjá leikurum og hefur eiginlega tekið við af hestamennskunni.  Vissi ekki að maður ætti að monta sig af því að hafa lagt áfengi til hliðar.  Rétt eins og þau séu orðin betri en við hin sem njótum enn léttra vína og bjórs.

Sjálfur er ég eins stemmdur og Frank Sinatra heitinn.  Hann skyldi ekki bindindisfólk og treysti þeim ekki.  Fannst slíkt fólk vakna fúlt og hafa enga möguleika á að líða betur þann daginn.  Fyrir mér er algjört bindindi eins og að halda í sér hægðum. Gengur ekki upp til lengdar.

Færðu inn athugasemd