Skilgreining á aumingjum: Mannleysur sem leigja stærstu ýtu landssins til að ryðjast yfir sögufrægt Gálgahraun svo náttúruverndarsinnar hafi ekkert til að berjast fyrir lengur.
Skilgreining á aumingjum: Bæjarstjóri Garðabæjar, forstjóri Vegagerðarinnar og verktakavinir þeirra úr flokknum sem panta lögreglusveit upp á fimm tugi til að verja siðlausar framkvæmdir og handtaka mótmælendur. Efast um að aðrir flokkar geti pantað slíka þjónustu hjá lögreglunni, nema kannski Framsókn.
Skilgreining á aumingjum: Engeyingar sem hagnast á öllu saman meðan ríkið borgar brúsann. Týpískt!