Við erum eyjafólk og þar af leiðandi hrædd við fólk handan hafsins. Aldirnar geyma sögur af vondum útlendingum sem vildu okkur aðeins illt. Ef það voru ekki danskir herrar í Kaupmannahöfn þá voru það Spánverjarnir sem við myrtum fyrir að hleypa íslenskum heimasætum upp í seglskipið sitt. Gleymum ekki Tyrkjaráninu.
Löngu orðið ljóst að útlendingar eru illmenni upp til hópa. Frekjudallar sem heimta að fá að reisa hér moskur á bestu stöðum borgarinnar. Sumir þeirra vilja jafnvel fá að kaupa hálft hálendið undir golfvelli fyrir ríka Kínverja og austfirskar hafnir í framhaldinu.
Hérna sleppir reyndar kaldhæðninni hjá mér. Finnst fátt fyndið við að einn helsti leiðtogi múslima hérlendis sé að heimta að tillit sé tekið til bænastunda í íslenska skólakerfinu. TRÚ á einfaldlega ekki að stýra skólastarfi í grunnskólum. PUNKTUR. Mötuneyti ekki að taka svínakjöt af matseðli af tillitssemi við mikinn minnihluta nemenda. Fólk velur einfaldlega og hafnar á diskinn sinn.
Svo birtist þessi sami maður skömmu seinna með konu sinni og barnabörnum til hjálparsamtaka með lambalæri og fjölmiðla í eftirdragi. Tilviljun. Tel ekki. Hann veit einfaldlega að hann er búinn að gera upp á bak með frekju sinni og neyðist til að bæta fyrir það. Ísland er ekki enn tilbúið að leggjast flatt fyrir Islam. Erum enn að meðtaka Kristnina.