Tvær vikur liðnar af kennaraverkfalli í framhaldsskólum og allt í hnút vegna krafna menntamálaráðherra um styttingu náms til stúdentsprófs. Blauti draumur íhaldssins enn á sveimi og til óþurftar. Kerfisbreytingar eiga ekkert heima í kjaraviðræðum. Þær verða að bíða betri tíma.
Styttingarumræðan er reyndar ekki svo galin … þegar kemur að Alþingi. Til hvers að láta þetta lið hanga þarna niður við Austurvöll í fjögur ár í senn. Fæst af þeim eru bændur eins og var raunin á 19. öld. Þurfa ekki að huga að búskap að vori eins og þá.
Hvernig væri að þessir 63 kjörnu fulltrúar þjóðarinnar sætu lengri þing og kláruðu kjörtímabilið sitt á þremur árum í stað fjögurra? Þannig myndi tíminn nýtast betur og fleiri mál afgreiðast á hverju þingi. Og endurnýjunin verða meiri í þingmannahópnum. Þannig fengju kjósendur síður leið á þeim sem þau voru plötuð til að kjósa með lygum og prettum.