Gleðidagar í gangi. Fylgdist síðast með göngunni fyrir tveimur árum. Nenni ekki á hverju ári og efast um að nenna núna. Allt of mikið af fólki. Myndi vilja vera minna mannafælinn og geta glaðst með og stutt alla sem eru hinsegin.
Fordómar á Íslandi virðast vera að minnka gagnvart öðrum kynhneigðum, en ávallt sitja eftir einhverjir miðaldra þverhausar með apaheila og blogga frá kjallaraholum sálar sinnar þess fullvissir að samkynhneigð sé smitsjúkdómur sem geti borist til barna sem horfa á gönguna með foreldrum sínum.
Skilja ekki og neita að trúa því að hneigðir okkar eru sennilega flestar meðfæddar. Og þó svo að þær séu samkvæmt persónulegu vali einstaklinga, þá kemur þeim það nákvæmlega ekkert við. Ættu frekar að rífa hausana úr rassgötunum á sér og virða fyrir sér birtu og gleði lífsins í stað þess sitja í keng og bölva hinsegin fólki af því að það er ekki nákvæmlega eins og þeir karlfauskarnir með sín myrku hjörtu og hatur á lífinu.
Gleðjumst og verum jákvæð! Fögnum fjölbreytileika lífsins!