Hneykslast fyrir hönd annarra

Ég hef vissulega hneykslast fyrir hönd annarra.  Fylgt réttrúnaðarkórnum í gegnum eld og brennistein.  Misskilið hrapalega og sett mig á háan hest.  Því það má ekkert segja lengur. Góða fólkið bannar það.

Lenti í smá ritdeilu við Jakob Bjarnar blaðamann út af því litla sem Frosti Logason hafði látið út úr sér og góða fólkið hafði gleypt og blásið upp í hæstu hæðir.  Kom svo í ljós að við Jakob vorum á sama máli að kynjakvótar gagnast konum ekkert til langframa.

Á það til að tjá mig um helgar í athugasemdum með einn kaldan á kantinum.  Kann ekki góðri lukku að stýra.  Trúið mér.  Látið lyklaborðið vera ef áfengur drykkur er innan handar!

Við Íslendingar erum heimsmeistarar í að hneykslast fyrir hönd annarra. Netheimar loga í kjölfarið.  Og enginn er skárri fyrir vikið.

1 athugasemd á “Hneykslast fyrir hönd annarra

Færðu inn athugasemd