Black lives matter

Bandaríkin hafa aldrei verið vagga frelsis og lýðræðis. Það er bara ímynd þeirra. Rétt eins og að Sjálftæðisflokkurinn standi fyrir einstaklingsfrelsi.

Bandaríkin færðust inn í fasisma í lok þrælastríðsins með sigri Norðurríkjanna. Ríki hert í eldi, ofbeldi og dauða bræðra og systra. Við tóku frekari landvinningar og villta vestrið með drápum á innfæddum. Frelsi í orði en ekki á borði fyrir þeldökka. Landi rænt af þeim sem voru þar fyrir.

Að Barack Obama hafi náð að verða forseti þessa ríkis er rannsóknarefni sagnfræðinga framtíðarinnar. Eflaust tókst honum það vegna þess að ungt og frjálslynt fólk flykktist á kjörstaði og styrkti framboðið í gegnum netið.

Joe Biden verður að fá konu og helst þeldökka eða af suður-amerískum ættum sem varaforsetaefni sitt. Virkja unga fólkið sem annars nennir ekki að skrá sig og mæta á kjörstað. Annars á hann ekki möguleika á að velta þessum heimska okra úr embætti.

Ef fíflið Trump verður endurkosinn, þá er úti um þá lýðræðistilraun sem bandaríki norður-ameríku hafa verið síðastliðin 250 ár. Þá hefst seinni borgarastyrjöldin milli frjálslyndra, íhaldssamra, hvítra og litaðra. Ríkjasambandið verður leyst upp og ríkin fá sjálf að móta sína framtíð eftir vilja íbúanna.

Sjálfur er ég ekki laus við fordóma þrátt fyrir að telja mig frekar frjálslyndan. Ekkert okkar er laust við fordóma. En þeir fordómar mega ekki verða til þess að samfélagið leysist upp í ofbeldi og óstjórn.

Fordómar eru sprottnir út frá fákunnáttu og hræðslu. Menntum og drögum úr ótta. Kynnum okkur innflytjendur. Kynnumst hvort öðru.

Færðu inn athugasemd