Það má ekkert lengur

Lengi vel var konum og stúlkum haldið niðri af körlum og drengjum. Öldum saman og óréttilega. Langt fram eftir tuttugustu öldinni. Allt fram á sjöunda áratug, er þær brutu af sér hlekkina, og svo kom #MeToo byltingin og leysti hnút af málstöðvum fjölda kvenna sem í kjölfarið lýstu frá misnotkun af hendi karla gegn sér. Mjög gott mál. Byltingin var hafin. Björt framtíð framundan.

En byltingin á það til að éta börnin sín. Núna má nákvæmlega ekki neitt ef þú ert maður eða drengur. Tvíræðir brandarar eru bannaðir. Ekki má karlmaður lengur reyna við konu á netinu eða á öldurhúsum. Það er kynferðisleg áreitni. Karlmaður má alls ekki lengur líta á konu. Það er einnig áreitni. Drengir mega ekki lengur toga í hár stúlkna. Það er áreitni. Daður er algjörlega bannað. Þó það sé list og dans sem engan særir.

Karlmenn verða að passa sig sérstaklega vel á sínum vinnustað að segja enga klámbrandara, tala um flottar konur eða vísa til kvenna á nokkurn hátt. Annars verða þeir kallaðir á teppið. Ekkert má lengur. Groddalegum karlahúmor hefur verið fleygt á bálköst sögunnar.

Nú ráða konur öllu og við karlar fáum að gjalda fyrir syndir feðra okkar.

Færðu inn athugasemd