# Heimur versnandi fer. Á miðöldum dugði Biblían til að halda skrílnum í skefjum. Nú þarf heila veiru til.
# Vinnur Þórólfur skákina gegn ríkisstjórninni og fær aftur að ráða öllu hér á landi?
# Hvaða nýja Helvíti bíður okkar í næstu viku. Verður sett á útgöngubann um nætur ásamt öðrum leiðindum?
# Þjóðhátíð, gaypride, menningarnótt og marathon. Allt farið annað árið í röð. Verða nokkuð Jól. Eigum við ekki bara að sleppa þeim líka!
# Fjórða bylgjan er hafin. Og þrátt fyrir allar bólusetningar. Við erum komin með nóg! Bylgjan FM 98.9 er ekki einu sinni skemmtileg lengur.
# Hvað er allt þetta lið að gera fyrir utan Orkuhúsið í röð eftir pinna upp í nös og niður í kok. Varla var það allt boðað þangað eða er með einhver einkenni. Þvílíkir andskotans sauðir að búa til skotfæri fyrir þau sem vilja halda leiðindunum áfram þrátt fyrir bólusetningar.
# Fram til þessa hafa fáir af bólusettum veikst alvarlega og lagst inn á spítala. Vonandi helst það áfram og að við klárum að bólusetja restina af þjóðinni til fulls. Annars verða öll næstu sumur svona! Opnað fyrir allt í júlí og svo skellt aftur í lás í ágúst.
# Þegar sóttvarnalæknir segir að við vitum hvað virkar, þá er hann að tala með rassgatinu eins og stundum áður. Þessar sífelldu takmarkanir til og frá hafa ekkert gengið til lengdar og eru að gera þjóðina geðveika. Andleg vanheilsa getur líka orðið að faraldri. Óhætt að taka það með í jöfnuna.
# Á eftir Delta koma svo eflaust Epsilon og Zeta afbrigðin. Eigum við hrökkva í kút í hvert skipti og skella í lás. Er ekki kominn tími til að líta á veiruna sem árstíðabundna flensu fyrir bólusetta sem eru ekki aldraðir eða með undirliggjandi sjúkdóma? Dæla þriðju sprautunni í landann og hætta að vera svona hrædd.
# Við stundum vitaskuld áfram persónulegar sóttvarnir af kappi með tíðum handþvotti, spritti og grímum. Kássumst ekki upp á ókunnuga. Höldum niðri hóstanum í lyftum og öðrum þröngum rýmum.