- Leggjum niður misheppnað og fullreynt fulltrúalýðræðið og breytum Alþingi í safn. Tökum upp beint og rafrænt lýðræði í gegnum snjallforrit.
- Slaufum Betri samgöngum og sleppum Borgarlínu. Bætum frekar vegi og hjólastíga og niðurgreiðum kaup á rafbílum og rafhjólum. Bætum Strætó með betri og umhverfisvænni vögnum og bílstjórum sem aka ekki eins og þeir séu í Formula 1.
- Leggjum niður risaeðluna ÁTVR og stórlækkum áfengisgjöld og skatta. Syndagjöld hjálpa engum nema þeim sem telja sig heilaga og upphafða, og fá kikk út úr því að banna okkur hinum að njóta lífsins.
- Hættum að niðurgreiða snobb fína fólksins eins og leikhús, sinfóníur og óperur. Geta bara greitt fyrir slíkt úr eigin vasa á fullu verði. Kemur okkur skrílnum á bolnum ekkert við.
- Tökum upp annan gjaldmiðil en krónuna. Að minnsta kosti tengingu við annan gjaldmiðil eins og Danmörk gerir.
- Sviptum útgerðina aflaheimildum okkar og leigjum þeim þær svo til baka gegn sanngjörnu gjaldi. Afleggjum gjafakvótakerfið.
- Endurskoðum tollkvótakerfi innflutnings matvara og komum í veg fyrir að verslunarrisarnir tveir kaupi upp allan kvótann og haldi svo áfram að okra á viðskiptavinum sínum í kjölfarið.
- Greiðum leið fyrir fleiri erlendar matvöruverslanir til að stunda viðskipti hérlendis. CostCo er ekki nóg.
- Leggjum niður Seðlabankann. Hann má alveg aftur verða skúffa í Landsbankanum. Er bara til óþurftar og leiðinda.
- Sameinum höfuðborgarsvæðið. Látum af þessu smákóngaveldi. Þarf ekkert alla þessa bæjarstjóra og bæjarstjórnir.
- Höldum áfram að kveða niður feðraveldið. Pínulitlir menn eiga ekkert upp á dekk. Þeirra tími er liðinn.
- Galopnum landið fyrir viðskiptum erlendis frá. Löngu tímabært að fá heilbrigða samkeppni gegn fákeppni þessa lands.