Kaupin á eyrinni

Enn á ný er læknamafían komin á kreik með ályktanir gegn undarlegustu hlutum eins og örorkulífeyri og áfengissölu.

Ekki má tengja bætur við vísitölu því þá nennir enginn lengur að vinna fyrir lúsarlaunum. Ekki má slá einkasölu áfengis úr höndum ríkisins þvi þá verða allir að fyllibyttum.

Og allir sjúkdómar landsins eru tengdir áfengisneyslu með einum eða öðrum hætti. Hvergi talað um óhollt fæði, sykur og hreyfingarleysi. Nei, bara helvítis áfenginu um að kenna.

Setja skal á sykurskatt í stað þess að taka skatt af hollustuvörum.

Kaþólikkar bjóða samkynhneigðum sóknarbörnum upp á bælingarmeðferðir í stað þess að bjóða barnaníðingum innan safnaðarins upp á sálfræðimeðferð til að takast á við kenndir sínar.

Byggja skal Borgarlínu til að greiða fyrir umferð og flutning fólks á milli borgarhluta. Jafnvel þó að meirihlutinn kjósi einkabílinn þrátt fyrir hangs í umferð á annatímum. Fólk skal bara losa sig við hinn bílinn og ferðast með strætó ásamt öskrandi útlendingum og unglingum með snjallsímana sína á fullu blasti.

Svona ganga bara kaupin á eyrinni fyrir sig á þessari djöflaeyju.

Færðu inn athugasemd