Betur má ef duga skal

Bjarg almennt leigufélag BSRB og ASÍ er fínt framtak sem mun koma lágtekjufólki til hjálpar í húsnæðisleit sinni.  Hið skrítna er að félagið þykist einnig ætla að leysa húsnæðisvanda millitekjufólks en setur svo tekjumarkið jafnlágt og velferðarsvið bæjanna.  Maður þarf því að vera öryrki, á mjög lágum launum eða atvinnulaus til að vera undir þeim og eiga rétt á íbúð.

Samfylkingin syngur blessunarlega svipaðan söng fyrir kosningarnar um almenn leigufélög að norrænni fyrirmynd.  Einhvern veginn grunar mig þó að tekjumarkið sé aðeins hærra hjá frændþjóðum okkar.  Hugmyndin er frábær en þarf að ná til fleira fólks svo vel eigi að vera.

Leigufélagið á ekki bara að leysa vanda þeirra sem fá ekki inni hjá velferðarsviðum bæjarfélaga sinna.  Til staðar er millihópur sem á hvergi sínu höfði að halla.  Fellur á milli skers og báru.  Þeirra vanda þarf einnig að leysa.

Snúið heim

Píratar án Birgittu eru bara píratar.  Vinstri-Græn eru allt of miklir kommúnistar og íhald fyrir minn smekk.  Ég ætla að snúa aftur heim á mína kratahaga í Samfylkingunni laugardaginn 28. október.  Jón Gnarr er genginn í lið með okkur.

Strikum út Steingrím

Eflaust væri best fyrir landið ef við myndum sem flest kjósa Kötu og félaga.  Kjósa yfir okkur aukna velferð en að sama skapi hærri skatta, boð og bönn a la Steingrímur Joð.  Af hverju er þessi risaeðla enn í framboði?  Vinstri – Grænir er svo ágætur kostur án hans.

Costco hefði aldrei fengið að koma til landsins á hans vakt.  Sjálfgræðgisflokkurinn má þó eiga það að hafa leyft erlendu verslunarveldi að nema hér land og lækka verð í kjölfarið.  Gera smá sprungu í samtryggingu (einokun og okur) kaupmanna landsins.

Píratar komu að utan með valkost við fjórflokkinn.  Nú verða að minnsta kosti átta eða níu framboð í kosningunum 28. október.  Upphefðin kemur að utan.  Vonandi fá íhaldið og fjósafasistaflokkar Sigga og Simma frí þetta kjörtímabil.  Og fasistaflokkur frekjunnar ekkert fylgi.  Barátta hennar gegn fátækt er yfirskin fyrir útlendingaandúð innhringjenda Útvarps Sögu.

Hatur á innflytjendum á lítið erindi í íslenska pólítík.  Ekki heldur blind ástúð á flóttamönnum sem mun bara þurrka út fylgi flokka sem við hana daðra (Samfylking).  Íslendingum er ekki efst í huga örlög þeirra sem hingað flýja undan stríðum og örbirgð utan úr heimi.

Okkur er meira umhugað um eigin velferð.  Aldraðra og öryrkja.  Heilbrigðiskerfið.  Menntamál.  Og mest af öllu um húsnæðismál sem eru í þvílíkum ólestri sökum græðgi airbnb og leigufélaga sem hafa eyðilagt leigumarkaðinn.  Því ekki hafa allir efni á að kaupa íbúðir á okurverði.  Við erum ekki öll með milljón á mánuði í laun.