Vika er langur tími í stjórnmálum

Vika þar til maður neyðist til að dröslast á kjörstað og merkja við einhvern listabókstaf.  Er búinn að vera óviss lengi og við það að krossa við Samfylkinguna af gömlum vana undir þeim formerkjum að þar leynist enn leifarnar af Alþýðuflokknum.  Sem er tómt rugl.

Veit að minnsta kosti að Sjálfstæðisflokkur, Framsókn og Viðreisn (Litli Sjálfstæðisflokkur) fá ekki atkvæði mitt. Og ekki Björt Framtíð því hún er opin í báða enda.

Líst hinsvegar best á Alþýðufylkinguna af minnstu framboðunum.  Albaníu-Valdi fékk mig til að skrifa undir stuðningslista fyrir utan Bónus á Smáratorgi fyrir viku síðan. Viðurkenni að hafa verið aðeins kenndur nýkominn úr haustferð vinnunnar.

En já, ég hef loksins ákveðið mig.  Píratar fá minn stuðning.  Eru ekki aðeins óhefðbundin í nálgun sinni, heldur eini möguleikinn á annarri stjórn en pabbadrengjastjórninni sem hér hefur ríkt síðastliðin þrjú ár og fitnað eins og púkinn á fjósbitanum.  Píratar verða að ná flestum atkvæðum og fá stjórnarmyndunarumboðið frá Guðna Th. Jóhannssyni forseta.

Annars verður eignarhlutur ríkissins í bönkunum seldur á útsöluverði í helmingaskiptum. Heilbrigðiskerfið endanlega einkavinavætt.  Menntun einungis gerð möguleg fyrir efnafólk.  Aldraðir og öryrkjar enn einu sinni skyldir eftir út í skurði.  Útgerðin áfram með frítt spil.  Landbúnaðarkerfið áfram spillt og lokað. Innflutningur heftur með ofurtollum.

Ég meika slíkt ekki lengur!

 

Miðjusætið

http://www.visir.is/sjadu-oborganleg-vidbrogd-farthega-eftir-ad-sessunauturinn-endurheimti-fremur-harkalega-saetisarminn/article/2016161029706

Djöfull kannast ég við þessa stemningu síðan í sumar þegar ég dröslaðist til Danmerkur og neyddist til að sitja báðar ferðirnar í miðjunni með hendur í skauti og lærin límd saman.

Til Danmerkur hlammaði smávaxinn gaur sér við gluggann svo ég var vongóður. En nei, stubbur svaf alla leiðina til Köben með útglennta fætur og risavaxinn pung. Ekki nokkur leið að stugga við honum plús að armarnir voru hans.

Frá Danmörku var mun skárra.  Hávaxinn gaur sem var ekkert að breiða úr sér meira en að hann þurfti eða var með frekju.  Spjölluðum saman alla leiðina.  Hann var á leiðinni í Laugavegshlaupið og ég þekkti stjúpföður hans heitinn.

Besta var að ég átti sæti við ganginn báðar ferðirnar en eftirlét það nánum ættingja.  Eitthvað sem ég hefði ekki getað gert fyrir nokkrum árum þegar félagsfælnin var  að gera út af við mig.  Svo kannski ætti ég að hætta þessu röfli og vera þakklátur.

Hef aldrei kosið Framsókn!

Samsæriskenningasmiðir halda því fram að barátta Simma og Sigga í Framsókn sé sviðsett til að fanga athygli fjölmiðla og mögulegra kjósenda.  Að Sigurður Ingi og Ásmundur Daði séu hvort sem er á leiðinni út úr pólítík og fleygi sér því á sverð sín til að gera hlut hins mikla leiðtoga meiri fyrir kosningar.

Viðbjóðslegt að sjá þetta gerpi sitja í sal Háskólabíós með fýlusvip lítils dekurdrengs meðan Sigurður Ingi fékk náðarsamlegast að mæla nokkur orð.  Við hlið hans til beggja hliða sátu foreldrar hans, tengdaforeldrar og kona.  Greyið litli strákurinn sem getur ekki staðið einn og óstuddur gegn flokksfélögum sínum.

Get varla lýst því hve mikið mig langar til að sleppa einni góðri sjómannakveðju í andlitið á honum.  Þessum Kim Jong-un Íslands.  Auðvitað ætti ég að óska honum sigurs í formannskjörinu og vona að Íslendingar láti í kjölfarið vera að kjósa þetta gerpi og hans náhirð.

En það eru bara svo margir fávitar á þessu landi sem kokgleypa slíka foringjadýrkun.  Svo margir bjánar sem finnst frábært að Simmi sé ofdekraður tuddi og yfirgangsseggur sem enginn nennir að vinna með ótilneyddur.

Ég óttast að þessi silfurskeiðardrengur verði endurkjörinn formaður í hádeginu á morgun. Hversu heimskur getur einn flokkur þá orðið?  Að kjósa þetta skrípi fram yfir gamlan og góðan sveitamann eins og Sigurð Inga.  Mann sátta og samvinnu sem er ekki alltaf að tuddast í fólki og vaða yfir það með frekju og yfirgangi.  Nema náttúrulega í flutningi Fiskistofu og við samningu nýjasta búvörusamningsins.

What do I care.  Hef aldrei kosið Framsókn!