Gleðjumst!

Gleðidagar í gangi.  Fylgdist síðast með göngunni fyrir tveimur árum.  Nenni ekki á hverju ári og efast um að nenna núna. Allt of mikið af fólki.  Myndi vilja vera minna mannafælinn og geta glaðst með og stutt alla sem eru hinsegin.

Fordómar á Íslandi virðast vera að minnka gagnvart öðrum kynhneigðum, en ávallt sitja eftir einhverjir miðaldra þverhausar með apaheila og blogga frá kjallaraholum sálar sinnar þess fullvissir að samkynhneigð sé smitsjúkdómur sem geti borist til barna sem horfa á gönguna með foreldrum sínum.

Skilja ekki og neita að trúa því að hneigðir okkar eru sennilega flestar meðfæddar. Og þó svo að þær séu samkvæmt persónulegu vali einstaklinga, þá kemur þeim það nákvæmlega ekkert við. Ættu frekar að rífa hausana úr rassgötunum á sér og virða fyrir sér birtu og gleði lífsins í stað þess sitja í keng og bölva hinsegin fólki af því að það er ekki nákvæmlega eins og þeir karlfauskarnir með sín myrku hjörtu og hatur á lífinu.

Gleðjumst og verum jákvæð!  Fögnum fjölbreytileika lífsins!

Afrek helgarinnar

Helgin virðist ganga nokkuð vel.  Enginn búinn að tapa lífi en því miður allt of mörg ofbeldisverk.  Allt of margir karlmenn með lítið sjálfsálit og skerta tjáningarhæfileika ákveða að láta hnefann tala í stað þess að nota það litla vit sem þeim var gefið í vöggugjöf.

Lítilmannlegt af lögreglunni í Eyjum að monta sig af handtöku á stórtækum dópsölum meðan hún neitar að upplýsa um kynferðisbrot, sem eru mun alvarlegri glæpir.  Hverjum er ekki sama um dópista og þeirra dílera.  Sjálfskaparvíti beggja aðila.  Tilgangslaust að eltast við slíkt fólk.

Fórnarlömb nauðgara hafa hinsvegar ekkert val.  Og virðast gleymast hjá löggæsluaðilum. Allt snýst um tölfræðina.  Ná nógu miklu af dópi.  Að handtaka nauðgara skilar engu í afreksbókina.

 

Páley er engin drusla

Hljómsveitirnar sjö sem ætluðu að hætta við að koma fram í Eyjum, Elliði bæjarstjóri og þjóðhátíðarnefnd hafa rætt málin ítarlega og vilja vinna saman að því að bæta hátíðina.

Páley lögreglustjóri gefur sig hins vegar ekki í þöggun sinni um kynferðisbrot og heldur því blákalt fram að öll hin lögregluumdæmin geri slíkt hið sama.  Sem er náttúrulega bull.

Merkilegt og raunar sorglegt hve klaufsk Páley er í samskiptum sínum við fjölmiðla um atriði sem sem skiptir ekki neinu höfuðmáli.  Fréttir og sögusagnir af nauðgunum í Herjólsdal koma ekki fyrst frá blaðamönnum í Reykjavík.  Þær koma úr snjallsímum gesta inn á samfélagsmiðla.

Er þá ekki bara næst á dagsskrá hjá lögreglustjóra að láta loka fyrir síma- og netsamband til Heimaeyjar yfir Verslunarmannahelgina… í þágu rannsóknarhagsmuna?

Að skrúfa fyrir upplýsingagjöf til fjölmiðla er tilgangslaust og sýnir bara svo forna hugsun á tímum þegar flest ætti að vera uppi á borðum og kynferðisbrot ekki þögguð niður fram yfir helgi.  Páley er augljóslega engin drusla.