Óða hunda á að skjóta!

Einn viðbjóðslegasti morðingi og nauðgari þjóðarinnar er laus skv. dv.is: http://www.dv.is/frettir/2012/5/25/laus-eftir-12-ar-i-fangelsi/  Segi það og skrifa.  Af hverju er ekki dauðarefsing á Íslandi?  Hvers á þjóðfélagið að þurfa að gjalda með þennan óþverra lausan á götunum?  Eigum við bara að bíða róleg þar til þetta kvikindi lætur til skarar skríða á ný?

Einn vinnufélagi minn fræddi mig einu sinni hvað þyrfti að gera við hunda sem ekki væri hægt að þjálfa og væru hættulegir frá fæðingu.  Hann átti einn slíkan og sá þann kost einan að fara með hvutta út fyrir bæinn og skjóta í hnakkann.  Annað var ekki í stöðunni.

Nauðgandi morðinginn hér að ofan er þannig einstaklingur.  Spurning hv0rt ekki þurfi að loka hann enn lengur inni.  Fyrr verðum við hin ekki óhult.  Stundum dugir mannúðin og fyrirgefningin ekki.  Því miður.  Þessi viðbjóður mun sennilega nauðga og myrða aftur ef hann er ekki passaður vel.  Sannaðu til!

Mannréttindi trompa allt

Vissulega er Eurovision ekki keppni í mannréttindum.  Svo mikið er víst.  Samt mega keppendur  þess alveg við því að leggja áherslu á mannréttindi.  Þrátt fyrir að mér hafi fundist sótt að ósekju að Grétu fyrir að hafa ekki fylgt í kjölfar Loreen þegar hún heimsótti sjóræningjafjölmiðil í Baku.

Persónulega hefði ég látið í mér heyra.  Og það hátt og skýrt.  Þannig var ég bara alinn upp.  Hefði ekki látið eitthvert ímyndað evrópskt samræmi villa mér um sýn.  Þegar einhver er að skíta á sig á að benda á það.  Svo einfalt er það!  Og viðkomandi á að skammast sín og breyta til batnaðar.

Enginn er ómissandi!

Tæpt er á milli herra Ólafs Ragnars og Þóru Arnórsdóttur í fylgi.  Persónulega finnst mér forsetinn hafa komið illa fram við Þóru.  Og þá sérstaklega vegna kyns hennar og aldurs.  Sextán ár verða að vera nóg í embætti fyrir gamlan pólítíkus.

Karlandskotinn var hættur um áramótin en dró svo í land þegar frambjóðendur fóru að gefa sig fram.  Atburðarrásin var listilega hönnuð.  Ólafur Ragnar elskar átök og sérstaklega að standa uppi sem sigurvegari að þeim loknum.

Þess vegna verðum við að veita öðrum atkvæði okkar.  Til að kenna karluglunni mannasiði.  Að við sem þjóð séum ekki fávitar upp til hópa.   Að við séum fullfær um að kjósa okkur forseta án þess að hann sé lokaniðurstaðan.  Enginn er ómissandi!

Kristjáni Eldjárn fannst tólf ár meira en nóg í embætti.  Og hann gekkst ekki við hvatningarorðum þess efnis að þá væru óvissir tímar framundan sem krefðust áframhaldandi setu hans í embætti forseta.  Enginn er ómissandi!