Íslenskt þjóðerni

Var varla kjaftur á Dominos þegar ég sótti slydduna mína.  Sennilega flestir heima hjá sér að berjast við meltingartruflanir og of háan blóðþrýsting.  I told you so!

Eins og með þorraviðbjóðinn þá fæ ég stundum á tilfinninguna að fólk þykist elska saltkjöt af ótta við álit annarra.  Rétt eins og það sé óþjóðlegt að neita sér um óþverrann sem vesalingarnir fyrr á öldum neyddust til að setja ofan í sig.

Mér er andskotans sama.  Þjóðhollusta snýst um að elska land okkar og tungu.  Ekki skemmdar matvörur frá fyrri tíð.  Þessu skylt er árátta íslenskra karla að hrúgast upp á fjöll og fyrnindi til að murka lífið úr litlum fuglum og sætum hreindýrum.

Saltkjöt og baunir…áfall

Aldrei þessu vant át ég ekki yfir mig af rjómabollum og kjötbollum.  Allt er gott í hófi.  Nenni líka ekki að sitja á könnunni í alla nótt.  Saltkjöti og baunasúpu sleppi ég alveg.  Get rétt eins sturtað iðnaðarsaltinu beint ofan í mig úr pokanum og svo pantað sjúkrabíl.

Ætti að kalla Sprengidag Háþrýstingsdag.  Sennilega næst besta mætingin á bráðamóttökuna yfir árið þennan dag fyrir utan Jólin.  Fólk passar sig ekki og skóflar í sig söltuðu kjöti og saltaðri súpu í hádeginu og líka um kvöldið.  Og skilur svo ekkert í vanlíðaninni.

Þá er ég nú gingeyptari fyrir flatböku frá Dominos.  Það er Megavika!

Dýr er dropinn

Bjánarnir í Íran ræskja sig og forstjóri eins olíufélaganna sprettur strax fram á netinu og boðar mögulega hækkun á eldsneyti.  Allt skal notað til að skara fleiri krónur að kassanum.  Jafnvel þó að megnið af okkar bensíni komi frá Rússlandi.

Væri ekki ráð að breyta þessum sólarhringssjoppum aftur í bensínstöðvar með almennilegri þjónustu og vöruúrvali.  Myndi kannski minnka rekstrarkostnaðinn og stuðla að lægra verði á lítranum.

Fólk fattar þetta ekki og hangir næturlangt á þessum stöðvum með kúkinn í buxunum í stað þess að drulla sér í bælið.  Aldrei lét ég sjá mig á slíkum búllum eftir vinnu.  Ekki nema að ég fengi borgað fyrir það.