Þegar ég fylgdist með Tónaflóði í stofunni heima þá rifjaðist upp sakbitin sæla mín fyrir stúlkna- og strákasveitum. Endurkoma Nylon kveikti í mér. Fór með það eins og mannsmorð á sínum tíma rétt eins og þegar ég hlustaði á Elvis meðan jafnaldrar mínir voru að missa sig yfir Wham og Duran Duran.
Author: Þrasvarður
Einmana kisudýr
Ömurlegt að mæta tjóðraðri kisu úti á svölum jarðhæðar með sorgmædd augu og ámátlegt mjálm. Fékk bara í hjartað og langaði svo til að frelsa hana úr fangavistinni.
Reykjavíkurflugvöllur…
er kominn á tíma og verður að víkja. Þvílík frekjan í Isavia að heimta að skógurinn í Öskjuhlíð verði að fara svo aðflugsstefnan haldi sér. Og vælir svo líka yfir uppbyggingu í Skerjafirði og Borgarlínubrúnni yfir Fossvog sem þrengja að gamla herflugvelli breta úr seinna stríði.
Er ekki bara kominn tími á þennan völl!