Djöflamergir

Er eitthvað við andlitið á mér sem segir fólki að því sé frjálst að traðka á mér? Bara spyr í sakleysi mínu.

Heimsótti tannsa í vikunni upp í Hamraborg. Tók leið 2. Á lokametrunum settist Verslunarskólamær við hlið mér og grenjaði í símann sinn að hún væri á leiðinni heim veik meðan hún saug duglega upp í nefið á sér. Come on!

Daginn eftir var ég á svipuðum slóðum að versla vindlinga fyrir gömlu. Út úr spilasalnum slæðist einhver rindill og ryðst fyrir framan mig í röðinni. Ég ætla að fara rífa kjaft en hætti við þegar ég lít í augu eigandans sem segja nei. Hefði bara endað í slagsmálum. Þessir andskotans spilafíklar telja sig hafa einhvern forgang.

Svo er það gengið sem gengur röngu megin á gangstéttinni og beint í flasið á þér. Hægri umferð djöflamergirnir ykkar! Er löngu hættur að víkja fyrir þeim en geri undantekningar fyrir eldri borgara og börn. Þetta er ekki flókið. Ekki heldur í matvöruverslunum.

Klárum röflið með bílstjórum dauðans sem slá ekkert af /gefa í þegar þú ert að skakklappast yfir gangbraut. Fer að taka með mér tómata bara fyrir þá helvítis djöflamergi.

.

Þríhöfða Sjálfstæðisflokkur

Bjarni sigraði Gulla og verður síst minna hrokafullur fyrir vikið. Kristrún hlaut rússneska kosningu sem formaður Samfylkingarinnar. Þorgerður Katrín leiðir Viðreisn. Formenn allra þriggja flokka klaknir í vöggustofu Valhallar. Enginn fær vinnu hjá Viðskiptaráði án helblás flokksskírteinis upp á vasann.

Að þykjast svo ætla að stýra jafnaðarflokknum inn á gömul mið jafnaðarstefnunnar eru rifin leiktjöld. Markmiðið er að taka sæti VG þegar sá flokkur hefur verið blóðmjólkaður í lok kjörtímabilsins og er ekki lengur stjórntækur vegna alls skítsins sem þau þurftu að innbyrða í stjórnarsamstarfinu.

Þennan jafnaðarflokk ætla ég ekki að kjósa í næstu kosningum. Það er ekkert náttúrulögmál að leiða Sjálfstæðisflokkinn alltaf að kjötkötlunum. Hann má alveg sitja á hliðarlínunni í fjögur ár. Jafnvel átta. Svo samfélagið geti jafnað sig og náð að verða einhverskonar velferðarríki á ný.

Skila sennilega auðu næst í fyrsta skipti á ævi minni. Til hvers að kjósa ef flestir flokkarnir eru til í að láta íhaldið taka sig í rassgatið í skiptum fyrir ráðherrastól.

Útfararstjórarnir

Rétt eins og Gvend grunaði þá er einkavinaferli Sjálfstæðisflokksins á almenningssamgöngum farið af stað. Bjóða á út allan akstur um höfuðborgarsvæðið. Þrátt fyrir að löngu sé ljóst að núverandi 40% akstur verktaka sé skítur og drulla á úrsérgengnum vögnum.

Lélegir vagnar og dónalegir bílstjórar sem er drullusama um að veita nokkra þjónustu. 100% slíkt eru endalok almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins. Og það vita einkabílabullur Sjálfstæðisflokksins með Davíð Þorláksson sem framkvæmdastjóra á Betri samgöngum og Árna M. Mathiesen sem stjórnarformann.

Þeir eru útfararstjórar almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins.