Slaufunarmenning hikstar

Auður og Bubbi gefa saman út lag. Aron Einar er aftur orðinn landsliðsfyrirliði í fótbolta. Sölvi Helgason er snúinn til baka með hlaðvörp sín. Það er engin slaufunarmenning til staðar hérlendis! Aðeins örlítil kæling á kallaköllum.

Kallakallatyppalingarnir eru vaknaðir aftur úr dvala eftir árásir afskiptasamra kvenna sem fannst á sér brotið. Málið er útrætt frá þeirra bæjardyrum séð. Sagan heldur áfram eins og ekkert hafi í skorist.

Eða því trúa greyið kallakallarnir með typpin sín út um allar trissur þar sem þau eiga ekki að vera.

Ógnin

Lögreglan er voða lukkuleg með tvo glæpamenn í hefndarhug í haldi sem mögulega hryðjuverkamenn. Rök komin fyrir frekari vopnavæðingu og auknum rannsóknarheimildum lögreglunnar. – Nei takk!

Lögreglan rétt eins allt dómskerfið er undir þumli Sjálfstæðisflokksins. Að sú heild fái aukin völd er uppskrift að alræðisríki undir stjórn téðs flokks. Enginn verður óhultur.

Nóg er að einstök útibú lögreglunnar starfi í þágu ráðandi fyrirtækja hvers pláss…hóst!…Akureyri. Förum ekki að veita þeim frekari völd og vopn. Nóg er nú þegar.