Félagsfælnin

Hef sennilega barist við þennan bölvald frá því ég skreið upp úr æsku og varð unglingur. Var oft mjög langt leiddur í atvinnuleysinu. Gat hvergi farið innan um fólk án þess að svitna og kyngja eins og vitleysingur. Forðaðist því fjölmenni og mannamót. Allar krefjandi aðstæður.

Þrátt fyrir nokkuð gott tímabil síðustu misseri þá forðast ég enn fjölmenni ef ég get. Lét mig þó hafa það að mæta í jólahlaðborð um daginn. Lifði það af en passaði mig á að fara nógu snemma heim áður en kvíðinn og innilokunartilfinningin sóttu að.

Að fara á fætur og mæta til vinnu getur jafnvel orðið barátta. Verð helst að mæta á undan öllum öðrum til að ná áttum. Að mæta seinastur er erfiði fyrir mig. Meika alls ekki þetta fólk í strætó rétt fyrir klukkan níu.

Félagsfælnin sótti hart að mér fyrr í mánuðinum.  Langaði mest til að loka mig af og rjúfa öll samskipti við umheiminn. Læsa að mér, draga fyrir og slökkva á símanum.

Náði loks að rífa mig upp af rassgatinu og fara meðal fólks kortéri fyrir jól. Þoli ekki þegar þessir svörtu hundar ná að glefsa í mig og draga mig niður í myrkrið. Næst skal ég hlaupa þá af mér.

Upphlaup

Í hverri einustu viku spretta upp mál sem fá þjóðina til að fara úr límingunum. Netheimar loga í kjölfarið og höfuð sökudólgsins er heimtað á silfurfati. Kyndlar og heykvíslar fara á loft.

Vikan líður og önnur tekur við. Nýtt hneyksli skekur samfélagið og um leið höfum við gleymt því sem var í gangi fyrir viku síðan. Við elskum að eipa fyrir framan tölvuskjáinn með kaldan eða hvítvín á kantinum.

Þykjumst þannig vera að leggja okkar lóð á vogarskálarnar í stað þess að rísa á fætur og gera eitthvað markvert til að breyta stöðunni.

Einelti

Var nýlega spurður hvort nokkuð einelti hafi viðgengist þegar ég var í grunnskóla. Ég svaraði almennt og án mikillar íhugunar að eineltið hafi verið lítið en stöku einstaklingar hafi lent í því. Sem við nánari umhugsun er rugl. Eineltið grasseraði alveg jafn mikið þegar ég sleit barnskónum og það gerir núna í skólum landsins. Munurinn er sá að núna er reynt að sporna gegn því.

Þá eins og nú réð goggunarröðin hvort fólk lenti í einelti eður ei. Sumir flottu og fínu krakkarnir misnotuðu stöðu sína og níddust á þeim sem voru ekki innvinklaðir í aðal klíkuna. Oft bekkjarsystkinum sem stóðu höllum fæti og áttu erfitt. Svona getur náttúran verið grimm en ég kenni líka uppeldi um. Börn læra ýmsa ósiði af foreldrum sínum sem beita vinnufélaga sína einelti.