„There has been an awakening. Have you felt it?“
Flokkur: Uncategorized
Back to work
Fjögurra vikna sumarleyfi senn á enda. Góð hvíld þar sem ég féll sem betur fer ekki í þá gryfju að fara gera hitt og þetta sem hefur setið á hakanum. Tjillaði fyrir allan peninginn. Fjórar vikur eru flott frí til að ná áttum. Maður þarf ekki alltaf að fara eitthvert. Nóg að hugurinn hvílist vel og vandlega.
Aum hegðun
Við erum vissulega afurð uppeldis og umhverfis. Sjálfur ólst ég upp með hundum, köttum, fiskum, naggrísum, hömstrum, páfagaukum, dúfum og kanínum. Ekki öllum á sama tíma en þó í gegnum æskuárin.
Þar af leiðandi á ég oft erfitt með að skilja fólk sem þolir ekki dýr og vill jafnvel eitra fyrir þeim komist þau inn í garðanna þeirra um nætur.
Eitthvað undarlegt er í gangi í Hveragerði og Sandgerði. Einhver að eitra fyrir kisum og voffum bæjanna. Mikið rosalega er það aum hegðun.