Germanwings

Ég var ekki beint upplagður í Berlínarför í næsta mánuði eftir að fyrstu fréttir af Germanwingsslysinu tóku að berast. Hef ekki stigið upp í flugvél í sjö ár og var ekki alveg sama þrátt fyrir að hafa aldrei beint verið flughræddur. Og vélin sömu tegundar og ég mun fljúga með, nema bara mun eldri.

Svo hefur þunglyndi aðstoðarflugmannsins komið í ljós og hvernig hann stýrði vélinni á fjallið. Greyið fólkið. Hvers átti það að gjalda! Og hurðin sem átti að verjast hryðjuverkum varð til þess að flugstjórinn gat ekki komið í veg fyrir harmleikinn. Ömurlegt!

Spurning hvort að nokkurn tíma sé alveg hægt að koma í veg fyrir svona atvik. Jafnvel þó aðrir úr áhöfn séu sendir inn á meðan annar hvor flugmaðurinn bregður sér frá. Erfitt að sjá á fólki sem gælir við að kála sér. Og hvað hefði flugþjónn eða flugfreyja getað gert? Yfirbugað gaurinn?

Nei, þetta er falskt öryggi sem tryggir ekki neitt. En það eru líka flugferðir upp að vissu marki. Við fullvissum okkur sjálf með gömlu, góðu möntrunni um að mun meiri líkur séu á að týna lífi í bíl en flugvél. Annars myndum við sennilega ekki þora um borð í þessar síldartunnur loftsins.

Dead in the water

Samfylkingin er dauð eftir formannskjör upp á eitt atkvæði. Kjörinn og óvinsæll formaður er dauður (dead in the water). Réttast væri að hann segði af sér svo flokkurinn fengi að blómstra. Rétta sig af.

En nei, sólbrunni gaurinn ætlar að halda áfram á þrjóskunni einni saman. Eyðileggja flokkinn og senda hann niður í óþekktar fylgistölur. Eigingirni maximus!

Píratar eru dæmið!

Það virðist nær tilgangslaust að mæta á kjörstað og kjósa til Alþingis. Dæmið virðist allt fyrir fram teiknað upp af gömlum valdastéttum sem settu sig í stellingar um leið og að almennum kosningum var komið á fót á sínum tíma. Fjórflokkurinn er bara eitt og sama dæmið með fjórum mismunandi deildum til að gabba kjósendur.

Píratar eru dæmið! Klippt og skorið. Einfaldur kostur í stað þess að skila auðu. Hér er fyrir löngu orðin þörf á róttækri breytingu. Burt með þetta pakk sem platar þjóðina til að kjósa sig aftur og aftur inn á þing til þess eins að viðhalda óbreyttu spillingarástandi.

Persónulega finnst mér að Gunnar Bragi utanríkisráðherra og Bjarni Ben. séu búnir að vinna sér inn nokkur kjaftshögg fyrir að gefa þingræðinu fokkputtann. Þessir menn skilja ekki ferli mála. Halda að þeim leyfist að taka einhliða ákvörðun um mál án aðkomu þingsins. Þar skjátlast þeim illilega.