Skeggjaða konan vann!

Skeggjaða konan vann Eurovision.  Kom svo sem ekki á óvart.  Sennilega frekar frjálslynt lið sem horfir á keppnina og kýs með farsímunum sínum. Aðrir sitja bölvandi fyrir framan kassann veifandi Biblíunni.  Conchita hin austuríska hafði sigur yfir hollensku sveitasöngvurunum.  Ég kaus reyndar báða flytjendur.  Gat ekki ákveðið mig.  

Simon Copland fjallar ágætlega um hve framsækin keppnin hefur verið í gegnum tíðina: http://junkee.com/why-eurovision-might-be-the-most-important-show-on-tv/33913#GjXL14SKoM6O4Cym.01  Hafnað viðteknum venjum. Og núna er hún nánast sýnd beint út um allan heim fyrir þá sem nenna að horfa.

Einhver þingmannaskríll í Rússlandi röflaði yfir því að Conchita tæki þátt í sömu keppni og rússnesku tvíbbanir. Hvernig ætli hljóðið sé í þeim núna eftir að hún hefur unnið og að púað var í hvert skipti sem tvíburasysturnar fengu há stig?  Evrópu er sama um stórveldisdrauma Pútíns.  Sá brandari dó með Hitler 1945.

Fimm gegn einni

Rosalega hljóta fimmenningarnir sem hópnauðguðu stelpunni síðustu helgi að vera með góðan móral í gæsluvarðhaldinu.  Sérstaklega gaurinn sem tók allt upp á myndband.  Sönnunargagnið sjálft.  Svo neita þeir allir sök. Sennilega að ráði lögfræðinga sinna.

Loksins kominn saksóknari sem lætur vaða og nær í gegn varðhaldi gegn svona vesalingum. Löngu tímabært að senda þau skilaboð að raunveruleikinn er ekki klámmynd á netinu þar sem fimm gaurar geta bara ákveðið að hamast á einu stelpunni sem eftir er í partíinu og að henni líki það.

Svona glæpur verður víst að fara í gegnum dómskerfið.  Því miður því sennilega er hvergi í hinum vestræna heimi betra að vera nauðgari eða morðingi.  Þvílíkir gríndómar sem falla gegn slíkum óþverrum hérlendis.  Er nema von að netheimar heimti að almenningur taki völdin í sínar eigin hendur og hengi fimmmenningana upp í hæsta gálga.

Stríðsminjar

Verktakar sem vissu ekki betur grófu í gegnum hluta af botnplötu dúfnahúss flughersins sem var staðsettur á Reykjavíkurflugvelli í seinna stríði.  Dúfurnar voru staðalbúnaður flugmanna ef senda þurfti út neyðarkall.

Jafnvel herstöðvarandstæðingur eins og Stefán Pálsson gerir sér grein fyrir mikilvægi þeirra fáu stríðsminja sem þó eru eftir.  Sögulegs gildis þeirra. Stríðið var okkar iðnbylting.  Harkalegt og þarft spark inn í nútímann.  Því verður ekkert neitað með því að eyðileggja minjar í kringum stærsta vitnisburð stríðsins:  flugvöllinn í Vatnsmýri.

Auðvitað á að vernda þessar fáu minjar sem eftir eru og gera þeim hátt undir höfði.  Sérstaklega fyrir breska og bandaríska ferðamenn sem án efa hafa áhuga á veru herliðs landa sinna hér í seinna stríði.  Búa til upplýsingaskyldi með myndum og teikningum af umfangi hernámsins. Hringja í sagnfræðingana Þór Whitehead, Eggert Þór Bernharðsson og Friðþór Eydal.  Get it done!

Hvorki hernámið né „ástandið“ er eitthvað sem við eigum að skammast okkur fyrir.  Bara hluti af sögu þjóðarinnar. Hvað með það þó afi hluta okkar hafi verið bandarískur eða breskur dáti!  Eigum bara að vera stolt af tengslunum, rækta þau og halda í heiðri.  Rétt eins og tengslum okkar við Norðurlöndin.

http://www.ruv.is/frett/hulin-hernamstid