Tortryggni

Ég er að eðlisfari frekar tortrygginn náungi.  Trúi flestu illu upp á náungann. Gekk því lengi vel með hníf innanklæða en er hættur því núna.  Kunni ekki við þá tilhugsun að vera stútað án þess að hafa nokkuð til varnar.  Eins gott að ég þurfti aldrei að nota kutann.

Sennilega var/er ég bara haldinn ofsóknarhugmyndum.  Hver myndi reyna að drepa mig kjaftforann fituhlunkinn?  Morð eiga sér þó stað á Klakanum. Menn hafa horfið sporlaust og hvíla nú beinin í djúpum gjótum Hafnarfjarðarhrauns.

„Ég neyti ekki….“

Ég trúi lítið á bindindi.  Skil ekki til hlítar pælinguna.  Að hætta einhverju um aldur og ævi.  Við erum ekki svo fullkomin.  Að neita sér alfarið um eitthvað hlýtur að kalla á aðra fíkn.  Svo einfalt er það.

Óþolandi fólk sem montar sig í sífellu af því að neita sér um hinar ýmsu lífsins syndir eins og tóbak, vín eða feitt kjöt.  Geta þau ekki bara haldið kjafti!  Við hin eigum nógu erfitt fyrir.

Verum ekki svona viðkvæm!

Nakin miðbæjarhetja var handtekinn síðustu helgi fyrir að fara með sveðju á eftir þremur hlandhausum sem migu á svefnherbergisgluggann hans.  Í gærmorgun var vonsvikinn gaur settur í járn fyrir að ætla að gleðja sjálfan sig fyrir framan hóp af öðrum djömmurum niður á Hverfisgötu.

Frétt þessa efnis birtist á netmiðlunum mbl.is, visir.is og dv.is.  Þvílíkur glæpur sem maðurinn framdi frammi fyrir hópi af öðrum spólgröðum og sótdrukknum einstaklingum.  Mætti halda að hann hefði beint byssu að liðinu.

Þarna voru engin börn á ferli.  Hvert var vandamálið.  Til hvers að eyða dýrmætum tíma lögreglunnar í slíkt smáræði og rugl.  Höfum við ekki öll séð typpi áður.  Meiri smámunasemin í fólki.

Væri nær að lögreglan drullaðist í úthverfin og snéri niður ofbeldisfulla heimilisfeður og leysti upp eftirpartý.  Eða hjálpaði leigubílstjórum sem þurfa að þola líkamsárásir hverja helgi.

Hvar er glæpurinn í því að kippa í kvikindið fyrir framan fullorðið fólk? Kannski ef viðkomandi myndi missa úr honum yfir einhvern.  Þá má rukka fyrir hreinsun á flíkinni.  Verum ekki svona viðkvæm!