Viðbjóður á hjólum

Eftir að ég fór að ganga og hjóla flestar mínar leiðir í vor þá get ég varla stigið lengur inn í strætó.  Gerði það þó af neyð í gær og dauðsá strax eftir því.  Bara kvöl og pína.  Skríkjandi framhaldsskólanemar með fætur upp í öllum sætum.  Ég mátti standa aftast í vagninum.

Einn af þeim sem fór úr á leiðinni horfði hreinum hatursaugum á mig frá gangstéttinni við biðstöðina þegar vagninn rann áfram framhjá.  Veit ekki hvað ég hafði gert á hans hlut.  Honum hefur sennilega þótt ég of feitur til að koma út fyrir myrkur.

Fólk kann sig ekki lengur.  Kann ekki lengur að hylja hugsanir sínar fyrir öðrum.  Slíkt skapar bara óþarfa spennu og ofbeldi.  Langaði svo til að hlaupa á eftir gerpinu og kenna honum smá mannasiði.  Sá hefði orðið hissa hefði mér tekist það svona feitur og ljótur.

Vaknið!

Fordómar eru byggðir á hræðslu við hið óþekkta segja sérfræðingarnir.  Ég óttast að bæði múslimar og Kínverjar muni ná að taka Ísland yfir. Undanlátssemi okkar er þannig að báðir aðilar eiga greiða leið að stjórn landsins.

Fjölmenningarbull krata og komma mun á endanum svipta okkur sjálfstæðinu.  Kínverjar munu kaupa klettinn ef ESB gerir það ekki á undan. Óþolandi þessi skammtímagróðagirni þjóðarinnar.

Hellisbúinn

Stundum grunar mig að ég sé einum of kurteis gagnvart konum.  Komi fram við þær eins og brothættar postulínsbrúður.  Og þess vegna sé ég enn einn. Þrátt fyrir gagnstæðar fullyrðingar þá kjósa konur durga fram yfir herramenn.

Allt í kringum mig sitja sveittar karlrembur og fautar að fögrum konum.  Þeir voru ákveðnir eins og hellisbúar.  Festu sér konu með látum.  Gáfu skít í góða siði og kurteisi.  Slík hegðun er líka bara skáldskapur í bókum og kvikmyndum.