Sjómannadagurinn

Djörf vinstristjórn vill sækja frekari greiðslur úr digrum sjóðum útgerðarmanna fyrir aðgang þeirra að sameiginlegri auðlind þjóðarinnar.  Kvótagreifarnir svara með því að kyrrsetja flotann í allt að vikutíma.  Láta eins og óþekkir krakkar. Hvernig er hægt að hafa samúð með svona fólki á sjálfan sjómannadaginn?

Alveg er frábært að fylgjast með þrælunum þeirra syngja í kór í auglýsingaherferðinni sem hefur dunið á landsmönnum síðustu vikur.  Það fer enginn á hausinn þó útgerðirnar neyðist til að greiða aðeins meira af ofurgróða sínum til ríkissjóðs.

Af hverju eru sjómenn að selja merki í tilefni dagsins til að safna fyrir betri björgunarbúnaði um borð í togurum landsins?  Á útgerðin ekki að greiða fyrir fullkomnasta búnað sem völ er á hverju sinni fyrir starfsmenn sína?

LÍÚ;  lærið smá auðmýkt og sýnið þakklæti!  Mjög fáir njóta þeirra forréttinda að fæðast Íslendingar. Enn færri fá að sækja sjóinn.  Deilið kjörunum betur með okkur hinum!

Þangað leitar klárinn þar sem hann er kvaldastur

Að Þóra skuli hafa dirfst að taka þátt í starfi stjórnmálasamtaka sem eru ekki lengur til er stærsta ástæðan fyrir því að ekki má kjósa hana.  Samfylkingin er langt í frá Alþýðuflokkurinn sálugi.  Tómt Alþýðubandalagslið sem ræður þar ríkjum núna.

Sama lið og sitjandi forseti stýrði áður en hann slysaðist á Bessastaði fyrir sextán árum.  Hann má eiga stórpólítíska fortíð að baki en hún má ekki einu sinni hafa daðrað við stjórnmálin í æsku.  Enn og aftur eru gerðar ríkari kröfur til kvenna en karla.

Verst þykir mér þó að kjósendur virðast ætla að haga sér eins og klárinn sem leitar þangað sem hann er kvaldastur.  Virðast öll vera búin að gleyma klappstýruhlutverki sitjandi forseta fyrir útrásarræningjana fyrir ekki svo löngu.

Eiga tvær neitanir á Icesave að bæta fyrir þær syndir?  Komu þær neitanir ekki útrásarþjófunum best?  Trúir fólk því virkilega að Ólafur hafi gert þetta eingöngu fyrir þjóð sína.  Hvernig væri að vakna og finna ilminn af sjóðandi kaffipottinum!

Gott og vel.  Kjósið aftur yfir ykkur klappstýru kúgara og ræningja.  En þið skuluð ekki dirfast að kvarta um mitt kjörtímabil þegar þið hafið fengið upp í kok á karlinum sem þekkti ekki sinn vitjunartíma.

Að eftir sé að koma í höfn kosningu um ESB er ekki næg ástæða til að styðja þennan gosa til áframhaldandi setu á forsetastóli. Allir aðrir frambjóðendur hafa lofað að sjá til þess að þjóðaratkvæðagreiðsla um inngöngu fari fram reyni ríkisstjórnin að sneiða framhjá henni.

Og það verður ekkert Icesave III.  Dómsorð í því máli mun birtast í byrjun september og forseti Íslands mun ekkert geta gert gagnvart þeirri niðurstöðu þrátt fyrir fullyrðingar um hið gagnstæða.  Málið fór úr okkar höndum þegar við höfnuðum Icesave II.

Gleðilegt sumar

Sumarið er framundan með áætlun um að missa að minnsta kosti sex og helst fleiri kílógrömm og lækka sykurstuðulinn niður í viðráðanlega tölu.   Því læknirinn sagði mér að mæta ekki í tékk í byrjun september í sama ástandi og ég var núna síðast.  Hann er búinn að fá nóg af letinni í mér.

Hef fengið lokaséns til að snúa taflinu við.  Læknirinn spurði mig hreint út hvort ég vildi í raun léttast eða ekki.  Ég svaraði játandi og ætla að standa við það.  Er orðinn svo leiður á því að vera fituhlunkur með áunna sykursýki.

Langar ekki til að fara að sprauta mig með insúlínpenna í síðuna.  Hjáveituaðgerð er eiginlega ekki heldur í boði fyrir mig.  Gaur eins og ég sem hefur verið lengst af grannur á að geta orðið þannig aftur án aðgerða.  Eða svo segir læknirinn mér.

Gleðilegt sumar!