Umboðsmenn Andskotans

Skrattaðist í smá verslunarleiðangur í gær.  Ekki bara vegna Eurovision, heldur var allt tómt hjá mér.  Ákvað að styrkja ríkið aðeins extra og slæddist inn í Vínbúð í leit að Thule.  Múgur og margmenni þvældust fyrir mér.  Come on, við vorum bara að fara að tapa í Eurovision!

Faðir rétt yngri en ég sem var á eftir mér með ca. sex ára dóttur sína fékk mig til að staldra við.  Karlgreyið hafði ætlað sér að kaupa tvær léttvínsflöskur en kortið svaraði „engin heimild“. Stráksgreyið svaraði neitandi þegar kassagaurinn spurði hvort hann kæmi aftur.  Kvöldið var ónýtt hjá honum.  Ég fann virkilega til með honum.  Lá við að ég byðist til að leggja út fyrir flöskunum hans tveimur.

Fell hreinlega saman þegar ég verð vitni að því að einhver hafi ekki efni á að greiða fyrir vörurnar sínar.  Slíkt er svo sorglegt.  Sjálfur passa ég að lenda ALDREI í slíkri stöðu.  Fylgist vel með mínum litlu fjármálum.  Að þurfa aldrei að greiða FIT- kostnað fyrir að fara yfir núllið.  Merkilegt samt að manni skuli samt alltaf vera hleypt þar yfir án viðvörunar?

Bankar eru umboðsmenn Andskotans!!!

Love Will Set You Free

Viðurkenni fúslega að ég hélt með gamla manninum sem svo reyndist vera næst elsti keppandinn í Baku.  Ein af rússnesku ömmunum er víst ári eldri en hann. Bömmer!

Engelbert Humperdinck skilaði sínu að mínu mati en hefði mátt sleppa lokaöskrinu.  Sá gamli fékk loksins draum sinn uppfylltan með því að taka þátt. Hafði reynt að komast í keppnina fyrir fjörtíu og fimm árum án árangurs. Öðlaðist reyndar heimsfrægð stuttu seinna.

Ég er veikur fyrir fallegum enskum framburði rétt eins og Eiríkur Hauksson. Þvílíkur munur að hlýða á eldri, enskan herramann syngja fallegt ástarljóð. Hreinasta unun.  En slíkur flutningur er ekki fyrir alla. Skiljanlega.

Engar meintar nauðganir eiga sér stað!

Voðalega held ég að þeir sem mæla á móti því að hætt verði að skrifa um „meintar“ nauðganir í blöð og netmiðla séu skaddaðir einstaklingar.  Jafnvel smá hlynntir því að konur séu teknar með valdi á djamminu.  Að slíkt sé bara hluti af leiknum.

Af hverju er alltaf ritað um „meintar“ nauðganir en aldrei meinta líkamsárás eða meint innbrot?  Vegna þess að sá (varla sú) sem gælir við lyklaborðið þá stundina hefur einhvern tíma orðið fyrir höfnun konu og trúir því statt og stöðugt að stundum sé ekkert að marka slíkar neitanir á nánari kynnum.  Að hún sé að leika sér að honum.  Og þess vegna þurfi karlmaðurinn stundum að taka málin í sínar hendur og ganga „ákveðið“ fram til að koma málum af stað.  Slíkt geti varla talist til nauðgunar.

„Meint“ nauðgun á prenti er jafngildi þess að fórnarlambinu sé nauðgað aftur frammi fyrir alþjóð.  Nauðgunarkærur eru sjaldnast misskilningur.  Og ölvunarástand eða klæðnaður fórnarlamba slíks glæps eiga ekki að skipta neinu máli.  Nauðgun er aldrei réttlætanleg!  Ekki frekar en annað ofbeldi.