Hreinn gróði

Skil ekkert í Sjálfstæðisflokknum að vilja ekki bjarga NASA frá því að verða rifið niður í öreindir!  Sjálfum gamla Sjallanum í Reykjavík.  Að flokkurinn skuli leyfa einhverjum Framsóknarmanni að tæta húsnæðið niður svo hægt sé að byggja hótel á reitnum.

Kannski ekkert skrítið þar sem að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn eru tvær deildir Sjálfgræðgisflokksins.  Þar er ekkert rými fyrir sögu og menningu.  Bara hreinan gróða.  Annað má eiga sig.

Því ekki, fyrst að búið er að rífa gamla bakaríið þar sem jólasveinarnir birtust ofan á forðum daga syngjandi og dansandi.  Og reisa þar himinháa skrifstofubyggingu sem hýsir aðallega skrifstofur Alþingis.

Því skyldi þá ekki gamla Sjálfstæðishúsið hverfa líka?

Þjóðhátíðarregn

Regnið í gær var í anda Þjóðhátíðar í Eyjum.  Ömurlegar dembur og skúrir þess á milli.  Ég flatur og skítþunnur í leku tjaldi með æluleifar í kokinu og alveg að míga á mig.  Gott ef ég þarf ekki að kúka líka.  Djöfull er ég svangur!  Verð edrú í kvöld – Einmitt!

Slær ekkert slíka morgna út í Herjólfsdal.  Svefnleysi, kvenmannsleysi, og hlandpína frá Helvíti.  Djöfull skal ég hösla næstu nótt!  Fyrst er það sturta og næring.  Fataskipti og von um betri tíð.

Lífið er yndislegt!

Forvörn og meðferð

Álfasölu SÁÁ lýkur í dag.  Sölufólk reynir ákaft að höfða til samvisku okkar fyrir utan Vínbúðir og Bónusverslanir.  Veit ekki hvað þessi fígúra kostar núna.  Hef strunsað framhjá öllu liðinu með bjór í poka og lokað fyrir hlustir og buddu.

Rándýran bjór sem ætti með réttu að gera svona betl óþarft.  Eiga himinhá áfengisgjöld og skattar ekki að renna til forvarna og meðferðarúrræða?  Greinilega ekki fyrst að SÁÁ neyðist til að grípa til betlistafsins nokkrum sinnum á ári.

Langaði til að mölva sjónvarpið þegar Gunnar Smári Egilsson formaður framkvæmdastjórnar SÁÁ vældi sáran í Kastljósi að enn hærra verð á áfengi hefði fækkað glæpum í landinu.

Fattar ekki að stór hluti glæpalýðsins hefur snúið aftur til heimahaganna í A-Evrópu eftir að hafa gengið hér um í hópum berjandi menn og nauðgandi konum í miðbæ Reykjavíkur fyrir hrun.

Og gleymir að nefna alla unglingana sem fara beint í sterkari efnin því þau eru mun ódýrari og auðfengnari en sakleysislegur bjór úr rammgerðum, ríkisreknum okurbúllum.

Gunnar Smári á bara að skammast sín ásamt hinum fávitunum sem halda því fram að rándýr og ríkisrekin áfengisverslun forði ungviðinu frá fíkn í vín og vímuefni.

ÁTVR er botnlaus tekjulind fyrir ríkið.  Stofnun sem rukkar inn himinhá gjöld og skatta af vöru sinni en skilar þeim svo ekki til forvarna og meðferðar.  Notar aurinn frekar í að halda uppi ofvöxnu og sístækkandi embættismannakerfi.

Og til að halda úti síðustu ríkisreknu verslun Íslenska lýðveldisins; Vínbúðinni.