Afsakið meðan ég æli

Veiii.  Olíufélögin fá aftur einn og hálfan milljarð sem þau greiddu í bætur fyrir samráð.  Til hvers erum við með héraðsdómstóla í eigu stórfyrirtækja landsins?  Andskotans, helvítis, djöfulsins bananalýðveldi!

Eins gott að þessu verður áfrýjað til og snúið fyrir Hæstarétti.  Ekki er á bætandi óréttlætið í þessu landi.  Verra er að samráðið stendur enn og enginn segir neitt.  Við greiðum samviskusamlega okurverð fyrir hvern lítra á fjölskyldubílinn og kennum svo ríkinu um.

Vestræn samviska

Dæmdu mig ef þú vilt, en ég er sammála Guðmundi Franklín Jónssyni í Hægri Grænum hvað varðar þróunaraðstoð Íslands.  Til hvers að eyða tæpum sex milljörðum á ári í slíkt dekur meðan við erum að loka spítölum hérlendis og skera heilbrigðisþjónustuna niður inn að beini.

Skrifa bara eins og Guðmundur í viðtali á Útvarpi Sögu : Hjálpum okkur fyrst áður en við förum að hjálpa öðrum.  Fyrir utan það er þróunaraðstoð oftast bara samviskubætur til afrískra stríðsherra sem svo nota hana til þess að kaupa vestrænar eftirlíkingar af rússneskum árásarrifflum (AK-47).

Sjúkt samfélag

Hvað er eiginlega að hjá hjúkrunarfræðingum sem vilja skrifa upp á getnaðarvarnarpillur fyrir ellefu ára stúlkur?  HALLÓ!  Að betra sé að þær hafi einhverja vörn en enga.  Hvað um ábyrgð strákanna?

Börn eiga ekkert að vera stunda kynlíf fyrir það fyrsta.  Eiga að vera að leika sér eins og önnur börn.  Hérna er um stílhreint uppeldismál að ræða.  Foreldrar eru ábyrgir fyrir uppeldi og hegðun barna sinna.  Börnin apa það eftir sem fyrir þeim er haft.