Loðnir vangar

Voðalega finnst mér margir gaurar á þrítugs- og fertugsaldri vera orðnir loðnir um vangana.  Mottumars er gott og blessað í þágu góðs málstaðar en hárvöxtur upp um kinnar og vanga meikar stundum engan sens.  Verða sumir svo ellilegir að það hálfa væri nóg.

Hef ekki þolinmæði til að rækta almennilegan skeggvöxt.  Enda virka hlussur eins og ég bara enn feitari með alskegg.  Hvað þá með einhvern ritjulegan híung í vöngum eins og barnaníðingur.  Bara raka þetta af og safna kannski aftur þegar skvapið er farið úr andlitinu.

Annars líður mér best nýrakaður.  Hár þvælist bara fyrir.

Hjólað í vinnuna

Alþýðulýðveldið Ísland heldur áfram að þróast.  Er svo komið að í stað fleiri bílastæðahúsa munu reiðhjólaskýli rísa handa starfsfólki stjórnarráðsins sem skiptir óðum út bílnum fyrir reiðhjólið.

Ráðherrar munu þó áfram halda sínum bílstjórum og eðalvögnum.

Skerið

Datt inn á Útvarp Sögu þar sem verið var að ræða við einn flóttamanninn sem býr og starfar í Noregi.  Allt er okkur í óhag í samanburði.  Þar með talin óvirk verkalýðshreyfing og verðtrygging sem er tímaskekkja.

Þar vinnur fólk saman en ekki hvert í sínu horni eins og við.  Framleiðnin er mun hærri.  Þar mætir fólk stundvíslega og stundar sína vinnu í stað þess að draga lappirnar, hanga í símanum og skreppa allan daginn.

Er svo margt vitlaust hérlendis og má ekki breyta.  Gamlir varðhundar láta sitt ekki eftir án þess að glefsa.  Til hvers erum við með verkalýðshreyfingu sem gerir ekki rassgat fyrir félagsmenn sína?  Og svíkur bótaþega til hægri og vinstri.