Skrítið hvernig hugurinn velur minningar. Skíðar framhjá þeim verstu og sópar syndunum til hliðar. Allt til þess að við getum haldið áfram og staðið keik gagnvart speglinum sérhvern morgun.
Flokkur: Uncategorized
Diskarnir eru ekki skotheldir
Ég man að þegar geisladiskar tóku að ryðja sér til rúms þá héldu framleiðendur því fram að nú þyrfti ekki lengur að hafa áhyggjur af partýrispum eins og á hljómplötum. Rosalega höfðu þeir rangt fyrir sér.
Geisladiskar eru nefnilega misjafnir að gæðum. Og þeir bestu eru ekki notaðir undir fjöldaframleidda tónlist eða kvikmyndir. Hef komist að því eftir flutningana úr rottuholunni fyrir tæpum tveimur árum.
Þar passaði ég ekki nógu vel upp á diskana og leyfði þeim að liggja óvörðum hingað og þangað. Árangurinn er sá að annar hver diskur sem ég á er varla boðlegur í geislaspilara eða DVD. Hiksta bara endalaust.
Passaðu upp á diskana þína!
Eru fjögur kjörtímabil ekki nóg?
Skil ekkert í þessum 37 þúsund sálum sem vilja fá Óla grís áfram sem forseta. Til hvers. Svo hann geti haldið áfram að neita Icesave? Sú vitleysa er búin og kann ég honum góðar þakkir fyrir. Er ekki þar með sagt að ég vilji hafa hann lengur á Bessastöðum.
Best væri að leggja embættið niður og tryggja um leið rétt fólksins til að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu í umdeildum málum. Þurfum engan forseta. Bara leifar af gömlu fyrirkomulagi þar sem ríkisstjóri var staðgengill konungs. Ríkisstjóri varð síðar að forseta.
Hló mig reyndar máttlausan við að lesa platfrétt þess efnis að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ætlaði sér forsetaembættið en vildi samt halda Dorrit.