TikTok

Kína er að njósna um okkur!

Sat á stellinu um daginn og var að herma eftir Beavis og Butthead. Kveikti á TikTok skömmu seinna og það var fullt af myndböndum af þeim félögum.

Hvíl í friði

Ferlegt að hlýða á hróskór Sjálfstæðisfólks um hve frábær stjórnmálamaður Bjarni Ben. hafi verið fyrir að skara eld að köku Engeyinga í hartnær tvo áratugi skrýddur teflonskikkju andskotans.

Hvað gerir flokkurinn nú með engan Engeying á þingi? Deyr sennilega drottni sínum.

Fulltrúalýðræðið tryggir þér ekkert

Í smá stund komast aðrir að kjötkötlunum og standa sig ekkert betur en Bjarnabófinn og vinir hans. Þar til þeir taka við á ný og fá lyklunum skilað. Allir að hugsa um eigin rass í stað almennings.

Kosningar eru blekkingarleikur fundinn upp af hinni ráðandi stétt til að láta okkur finnast sem að við höfum um eitthvað að segja þegar raunveruleikinn er allur annar.

Beint lýðræði í gegnum netið er eina vitið með margföldum eldveggjum og varúðarráðstöfum. Alþingi er óþarft!