TikTok

Í öllu hangsinu heima við er ég orðinn TikTok fíkill. Get stundum hangið yfir þessu í tvo tíma samfleytt með símann í hendinni. Horft á myndbönd af vitleysingjum, leðurblökuköttum, klikkuðum köttum, viðtöl við frægt fólk, viðtöl við heimskt fólk sem styður Trump, geðsjúkling með tóma ræpu og vitleysingja sem kyrja með honum í kór, Kamala Harris og Tim Walz vera mannleg og eðlileg, Rottugengið, eftirhermur af Liam Gallagher, uppistandendur, þáttastjórnendur sem gera stöðugt grín að Trump og Vance, Sopranos, Godfather, Batman, Taylor Swift, Billy Joel og Bítlarnir.

Í öllu þessu áhorfi hef ég komist að því að helmingur bandarísku þjóðarinnar eru ólæsir, ómenntaðir og slefandi aumingjar. Og telja það til dyggðar að vera einföld og treysta siðblindum geðsjúklingi aftur blint fyrir stjórn landsins. Þrátt fyrir að hann hafi skitið upp á bak sér sem forseti.

Hvað er eiginlega að þessu liði! Vilja þau virkilega að Bandaríkin verði að einræðisríki undir stjórn vitfirrings og Republikanaflokksins? Fleygja lýðræðinu og sjálfsákvörðunarrétti fólks á bál sögunnar og ganga í lið með Pútin og norður-kórenska hlunknum.

Meðalgreinda bandaríkska þjóð!

Hvað kemur ykkur það við!

https://www.visir.is/g/20242617580d/oktoberfest-opid-bref-erindi-til-studentarads-rektors-haskolarads-haskola-islands-og-haskolaradherra

Stúdentaráð Háskóla Íslands heldur Októberfest árlega á malarbílastæði skólans og túninu þar við. Slær upp tjöldum, lokkar að matarvagna að síðasta giggi sumarsins og býður fram frábæra dagskrá tónlistarfólks eina helgi í september áður en frostið skellur á borginni.

Allt til þess gert til að bjóða nema velkomna aftur til nýs skólaárs. Og ekki síst nýnema sem eru að taka sín fyrstu skref eftir framhaldsskóla á æðsta menntasviðinu áður en vinnumarkaðurinn fær að njóta starfskrafta þeirra.

En æ, æ. æ! Boðið er upp á bjór til sölu frá Ölgerðinni. Jafnvel afsláttarkort fyrir þau sem ætla sér að mæta öll kvöldin og kannski spara smá pening í leiðinni í bjórkaupum. Því varla eru háskólanemar múraðir fyrir og þurfa flestir að horfa í hverja krónu til að lifa af veturinn.

Nám snýst ekki bara um að grafa nefið niður í skruddur. Heldur líka um félagslíf. Hitta samnemendur, vini og jafnvel lífsförunautinn. Og þá er stundum lyft glasi af bjór eða léttvíni, gleymt stað og stund og slakað á í góðra vina hópi.

Eitthvað sem þessir tveir gosar virðast ekki skilja. Geta ekki látið fólk í friði sem neytir áfengis í hófi. Sem flestir háskólanemar gera sökum tímaskorts vegna námsanna og lítilla fjárráða því áfengisgjöld og skattar á þessu skeri eru með þeim hæstu á jarðríki.

Hata svona gaura sem vilja stjórna öðru fólki bara af því að þeir eru leiðindapúkar sem engum líkar við. Gott og blessað að stunda bindindi, en látið okkur hin í friði sem njótum þess að lyfta glasi í góðra vina hópi. Hvað kemur ykkur það við!

Oasis

Bræðurnir loksins búnir að sættast. Djöfullinn sjálfur hélt að þetta myndi aldrei gerast. En menn þroskast og komast að því að þeir voru fávitar þá en feður nú.

Bíð spenntur við tölvuna til að tryggja mér miða á tónleika sem fara í sölu í lok mánaðarins.