Ég hef verið Arndís Anna

Arn­dís Anna Krist­ín­ar­dótt­ir Gunn­ars­dótt­ir, þingmaður Pírata, datt duglega í það á föstudaginn. Sem er svo sem ekki til frásagnar. Flest höfum við nú sofnað inn á salerni eftir duglegt kvöld á djamminu. Jafnvel dvalið þar lengur en þurfa þykir í djúpum sleik við einhvern spennandi.

Dyraverðir dýrkuðu upp dyrnar og hentu þingkonunni út þrátt fyrir mótmæli hennar. Kölluðu svo á lögreglu því það má víst ekki rífa kjaft við dyraverði sem eru mjög viðkvæm tegund af fólki og auðsæranleg. Hafa sennilega vonast til að Arndís yrði handtekin, fleygt í steininn og kærð. Sárabætur fyrir að fá ekki að draga hana bak við hús og lúberja hana eins og þeir gera við karla sem eru með dólg.

Nú hefur þingkonan beðist afsökunar á hegðun sinni. Gengist við að hafa verið dónaleg og brugðist illa við þegar aparnir í dyrunum óðu inn á hana og hentu henni út með látum. Alveg á ég von á að einhverjir hægri hálvitar eigi eftir að heimta höfuð hennar í gálga fyrir að hafa vogað sér að haga sér eins og strákur.

Stattu í lappirnar Arndís! Ekki fara að segja af þér fyrir að vera þú. Virkar sem mjög skemmtilegur djammfélagi sem væri frábært að djamma með…ef ég væri ekki orðinn svona illa miðaldra og kvöldsvæfur.

Einn flokkur skipar þau öll

Hver á fætur öðrum birtast þeir útilokuðu í viðtölum hjá hvorum öðrum eða með sigur í Landsrétti upp á vasann; dauð og ómerk ummæli og tæpa milljón í vasann í miskabætur.

Ótrúlegt en satt þá vilja tveir kvendómarar og einn karldómari halda möguleikanum opnum að fullorðnir fái að riðlast á stúlkum allt niður í fimmtán ára aldur án afleiðinga.

Þeir útilokuðu eru frjálsir til að halda áfram að vera fávitarnir sem þeir eru gagnvart stúlkubörnum og konum. Guði sé lof fyrir þriðja dómstigið sem er jafnt spillt og vitlaust og hin tvö. Allir dómarar skipaðir af sama flokknum.

Í opinn dauðann

„Ours is not to reason why; ours is but to do and die“ muldrar Corporal Upham þegar nokkrir landgönguliðar rölta um sveitir Frakklands í leit að Private Ryan því þrír bræður hans höfðu mætt skapara sínum og móðir hans átti skilið að fá einn son heim úr stríðinu.

Upprunalegi textinn er úr ljóðinu The Charge of the Light Brigade eftir Lord Alfred Tennyson um breska hersveit í Krímstríðinu 1854 sem gekk í opinn dauðann vitandi um örlög sín fyrirfram:

Half a league, half a league,
⁠Half a league onward,
All in the valley of Death
⁠Rode the six hundred.
„Charge,“ was the captain’s cry;
Their’s not to reason why,
Their’s not to make reply,
Their’s but to do and die,

Into the valley of Death
⁠Rode the six hundred.