…í tvær vikur í viðbót samkvæmt Svandísi. Sóttólfur vildi fjórar en fékk ekki. Krár og knæpur fá enn eina löngutöngina. Enda gerist allt slæmt eftir miðnætti eins og í Gremlins.
Vinkona tveggja alka
Kata Jak virkar á mig eins og vinkona tveggja alka sem hefur einsett sér að hjálpa þeim að tæma flöskuna svo þeir verði ekki ofurölvi. Fattar ekki að þeir hafa falið aðra flösku niður í geymslu sem þeir munu teyga þegar hún er sofnuð og samt rústa íbúðinni.
Opin rými
Öll mín starfsár á vinnumarkaði hef ég unnið í opnum rýmum. Og þau eru loksins að detta í tísku hérlendis einmitt núna með kröfum opinbers- og einkareksturs um minna húsnæði og færri fermetra fyrir hvern starfsmann. Skilrúm í stað veggja. Opnir básar í stað lokaðra skrifstofa.
Verði ykkur að því! Lítið fjör er að starfa í fuglabjargi. Hvað þá við þjóðbraut blaðrandi samstarfsfólks. Eini mögulegi flóttinn eru þráðlaus heyrnatól og endalaus hlaðvörp á netinu. Eða hverfa inn í sjálfan sig og eigin hugsanir. Loka hlustunum.
Verst er þó allt þetta lið sem hangir á öxlunum á þér. Skoðandi hvað þú ert að gera á skrifborðinu og í tölvunni. Eins og því komi það eittvað við.
Opin rými eru þó ekki alvond. Þú losnar við alla hurðaskellina.