Hvað ef…?

Ég tala digurbarkurlega um að láta af öllum takmörkunum og talnaleikfimi yfirvalda. Þjóðin sé meira og minna bólusett. En hvað ef helvítis veiran nær mér? Ef ég þarf að leggjast í rúmið og sóttkví í tvær vikur! Jafnvel inn á gjörgæslu og í öndunarvél.

Aldrei að segja aldrei. Veiran er lævís sem syndin. Finnur sér alltaf leið.

Auðvitað fer ég í tékk við minnstu einkenni og hlýði sóttvörnum. Fyrir mína nánustu og alla aðra. Þigg þriðja skammtinn og geng í takt.

En það er ekki þar með sagt að ég sé sammála sóttvarnalækni og heilbrigðisráðherra. Sagan dæmir okkur öll að lokum. Ekki að það skipti einhverju höfuðmáli..

Látum af þessum leiðindum

Ég geri mér grein fyrir að bólusetningar eiga ekki að lækna allt heldur að draga úr möguleika á smitum og draga úr einkennum þeirra sem smitast. Rétt eins og flensusprautur hafa gert síðustu áratugi.

Eins er farið með bólusetningar gegn Covid-19. Faraldurinn er sennilega orðinn að flensu í æðum flestra og ætti að vera sinnt sem slíkum. Klárum að bólusetja restina af þjóðinni og gefum aukaskammta til þeirra sem hafa bara fengið tvo.

Auðvitað eigum við áfram að sinna eigin sóttvörnum af elju og vernda viðkvæma hópa og aldraða af kostgæfni. Dæla auknu fjármagni í spítala landsins svo þau geti mætt þeim sem veikjast alvarlega með mun stærri bráðamóttöku.

En látum af þessum lokunum og takmörkunum sem tíðkuðust fyrir bóluefnin. Hættum þessum eltingarleik við tölur um smitaða, í og úr sóttkví, einangrun og gjörgæslu. Lítum á óværuna eins og hverja aðra kvefpest og höldum áfram með lífið án skimunar, tölfræði og almennra leiðinda.

Við erum að mestu bólusett! Hættum þessari varkárni, takmörkunum og lokunum sóttvarnalæknis og heilbrigðisráðherra! En það er auðvitað borin von fyrir kosningar. Yfirvöld þora engu að breyta síðustu vikurnar.

Kominn tími til

Sóttvarnaaðgerðir stjórnvalda fyrir komu bóluefna voru einhvern veginn á þá leið að nú fer pabbi í meðferð svo ástandið á heimilinu batni. Svo kemur pabbi aftur heim og heldur áfram að drekka þar til hann fer í meðferð aftur. Svo kemur pabbi aftur heim og heldur áfram að drekka.

Í stað þess að henda fylliraftinum út af fullbólusettu heimili á að senda hann enn einu sinni í meðferð svo hann geti komið aftur heim og haldið áfram að drekka. Leyfið honum bara að drekka sig í hel í einrúmi í stað þess að senda hann alltaf aftur heim til að skemma heimilislífið.

Samstaðan er rofin og mörg okkar nennum þessu ekkert lengur. Sýnið veirunni fullbólusettan fingurinn og hættið að eltast við sóttkvíar og tölfræði. Kominn tími til að lifa með covid-19 án takmarkanna. Treysta fólki til að sjá um eigin sóttvarnir innan um aðra.