Nútímavæðum áfengislögin!

https://www.visir.is/g/20262923469d/svth-og-netafengisverslanir-skora-a-al-thingi

Dröslumst inn í samtímann. Þetta þarf ekki að vera svona flókið. Aðgengi hefur ekkert lengur að segja um forvarnir heldur skattpíning ríkisins sem er fullsátt við netsölu á áfengi og þar með fleiri krónur í kassann í formi himinháa áfengisgjalda og skatta.

Málið snýst um þvermóðskupúka sem trúa því enn þá að með því að banna fullorðnu fólki að versla áfengi á netinu og jafnvel fá heimsendingu, þá koma þau í veg fyrir heimsendi.

Ekkert slæmt er að fara gerast. Ekki frekar en þegar bjórinn var loksins leyfður miðvikudaginn 1. mars 1989. Samfélagið átti víst að fara á hliðina og ofurdrukkið fólk að mæta til vinnu daginn eftir (eða ekki). Kostaði í mesta lagi einhverja höfuðverk og þynnku. Þjóðfélagið varð ekkert fullt upp frá því á virkum dögum.

Fyrir suma er bara svo gaman að geta lagt stein í götu annarra og bannað þeim hitt og þetta undir yfirskyni lýðheilsu og barnaverndar. Hafa stjórn á okkur hinum.

Hvað með börnin!

Alltaf sami söngurinn. Hvað með börnin sem hafa fyrir löngu síðan tekið fram úr fornaldar foreldrum sínum á netinu. Panta hvað sem þau vilja með nokkrum fingrasmellum á snjallsímann sinn sem þau fengu í fermingargjöf án þess að gamla settið verði þess vör.

Á meðan er gamla gengið í einhverjum samtökum foreldra gegn áfengisauglýsingum að berjast gegn netsölu á áfengi. Ljúgandi því að þar sé hægt að panta áfengi án rafrænna skilríkja. Ef svo er þá er það bara sama dæmið og þegar maður hékk fyrir utan ríkið og grátbað einhvern fullorðinn um að kaupa fyrir sig gegn smá þóknun.

Aðgengi, okurverð og skattar hafa ekkert að segja um hvort að fólk drekki sig fullt um helgar. Það gerir það bara samt með þyngri hausverk og léttara veski. Á meðan makar ríkissjóður krókinn. Sérstaklega með meiri sölu eins og nú er í gangi. Ríkið vill ekkert verða af frekari skatttekjum af áfengissölu og er því ekkert um að elta uppi netsala.

Þess vegna dregur lögreglan og saksóknarar lappirnar. Til hvers að drepa mjólkurkú sem bara fitnar og fitnar.

Samgöngur

Búið er að negla niður undirstöðum Fossvogsbrúnnar sem á að vera tilbúin eftir tvö ár. Hlemmtorg er tilbúið og verið er að vinna í Laugavegi upp þaðan að Þjóðskjalasafni. Hamraborgin er ekki sjón að sjá eftir niðurrif.

Gott og vel! Svo þessum áföngum Borgarlínu ásamt öllum þéttingaráformum fyrri borgarstjórnar er lokið með nýjum meirihluta Reykjavíkur sem nennir þessu ferli ekkert lengur.

Getum farið að einbeita okkur að því að leysa umferðarvandann á raunhæfan máta.