Ríkisstjórnin fer ekki í neinar grafgötur með hernað sinn gegn fjölmiðlum sem þeim fellur ekki í geð. Ríkisútvarpið skal hnébeygt til hlýðni eða lagt niður. Framsókn í gegnum Björn Inga Hrafnsson hefur keypt DV. Útgerðin á Morgunblaðið með húð og hári. Þar ritstýrir Davíð Oddsson og reynir af veikum mætti að endurrita söguna. Svona vill framsóknaríhaldið hafa það. Stjórna opinberri umræðu sér í hag.
Mjallhvít og dverganir sjö
Mjallhvít og dvergarnir sjö stjórna landinu. Forsætisráðherra og SJÖ aðstoðarmenn! Mega ekki vera færri án þess að allt fari til helvítis. Verð svo pirraður þegar ég horfi á þetta fífl sitja í þingsalnum párandi eitthvert rugl í skrifblokkina sína meðan aðrir mæla málum sínum fylgis. Til hvers er hann þarna? Er bara sóun á rými og tíma þingsins.
Hægristjórn helvítis fagnaði sennilega í gærkvöldi næsta skrefi sínu gegn þjóðinni. Engu líkara en að hún sé að refsa okkur fyrir að hafa leitt vinstri stjórnina til valda eftir hrun. Hærri skattar á matvæli og bækur. Hærri gjöld á sjúkrahúsheimsóknir í gegnum reglugerðir en ekki lög. Hækkað bakdyramegin.
Eins og afnám vörugjalda á raftækjum hafi eitthvað að segja fyrir hinn almenna borgara sem rembist við að ná endum saman. Sá neytandi er ekkert á leiðinni með greiðslukortið sitt í Elko að kaupa nýja þvottavél. Sú gamla verður bara að duga lengur.
Brauðmolakenning Vilhjálms Bjarnasonar fjárfestis og þingmanns fyrir íhaldið er svo bara olía á eld okkar sem sjáum í gegnum skattahækkanir stjórnarinnar og vitum að þeir tæpu sex milljarðar sem ríkið þykist vera að gefa eftir í tekjum munu bara lenda hjá hinum efnameiri.
Samkvæmt kenningu Vilhjálms nöldrara og fyrrverandi Útsvarskeppanda, þá munum við fátæklingarnir njóta afnáms vörugjalda með því að fá að kaupa gömul raftæki hinna efnameiri þegar þeir endurnýja draslið sitt. Eigum að vera þakklát fyrir það. Hef sjaldan orðið vitni að meiri veruleikafirrun hjá nokkrum þingmanni.
Ekkert má lengur
Allt að verða vitlaust því krakkakríli eru leidd til kirkju í aðventunni til að fylgjast með helgileiknum um Jesú. Engu líkara en að verið sé að mata blessuð börnin á boðskap ISIS samtakanna. Ein andskotans heimsókn í kirkju og sumir foreldrar fara úr límingunum. Sjá fyrir sér afkvæmi með messuhald í stofunni heima í kjölfarið.
Man reyndar ekki eftir því sjálfur að hafa farið í slíka heimsókn sem lítill strákur en þó eftir að kennarinn hafi lesið upp söguna um fæðingu frelsarans í einhverri hlöðu í Betlehem. Man að mér fannst hún svo fjarlæg. Bæði í tíma og reynsluheimi. Skyldi ekkert í því af hverju hann fæddist í sandbala fjarri öllu.
Auðvitað á ekki að neyða grunnskólanemendur til að mæta til kirkju. Hvorki til að hlýða á helgisögur eða í fermingarundirbúning. Þau hljóta að ráða því sjálf. En að sleppa sér í hvert skipti sem börnin verða fyrir smá lífsreynslu sem víkur frá handritinu sem foreldrarnir hafa samið við eldhúsborðið heima er tóm vitleysa.
Hvernig eiga þau að verða fullorðin án reynslu? Til hvers að vernda þau svo vel fyrir lífinu að þau geta ekki lifað því þegar þar að kemur?
Tek það fram að ég er utan trúfélaga og styð aðskilnað ríkis og kirkju.