Stytting kjörtímabilsins

Tvær vikur liðnar af kennaraverkfalli í framhaldsskólum og allt í hnút vegna krafna menntamálaráðherra um styttingu náms til stúdentsprófs.  Blauti draumur íhaldssins enn á sveimi og til óþurftar.  Kerfisbreytingar eiga ekkert heima í kjaraviðræðum.  Þær verða að bíða betri tíma.

Styttingarumræðan er reyndar ekki svo galin … þegar kemur að Alþingi.  Til hvers að láta þetta lið hanga þarna niður við Austurvöll í fjögur ár í senn. Fæst af þeim eru bændur eins og var raunin á 19. öld.  Þurfa ekki að huga að búskap að vori eins og þá.

Hvernig væri að þessir 63 kjörnu fulltrúar þjóðarinnar sætu lengri þing og kláruðu kjörtímabilið sitt á þremur árum í stað fjögurra?  Þannig myndi tíminn nýtast betur og fleiri mál afgreiðast á hverju þingi.  Og endurnýjunin verða meiri í þingmannahópnum.  Þannig fengju kjósendur síður leið á þeim sem þau voru plötuð til að kjósa með lygum og prettum.

Landráðsgælur

Gunnar Bragi utanríkisráðherra og aðstoðarskvísurnar hans tvær með samskiptatæki upp á milljón króna eru stödd í Úkraníu að sýnast fyrir heimsbyggðinni.  Imac, Iphone og Ipad eru einu græjurnar sem duga til verksins.

Fyrir ekki svo löngu síðan voru Úkranískir mótmælendur í sinni stöðu vegna ESB: http://www.visir.is/esb-ekki-ad-hjalpa-ukrainu/article/2014140218638.   Nú mætir Gunnar galvaskur til að stuðnings ásamt öðrum vestrænum ríkjum: http://www.ruv.is/frett/gunnar-bragi-rodd-islendinga-skiptir-mali.

Tóm sýndarmennska til að breiða yfir klúðrið hér heima vegna tillögunar um að draga umsóknina í ESB til baka.  Hverjum er ekki sama þó íslenskur ráðherra sé að þvælast í Úkraníu.  Gunnar er af veikum mætti að reyna herma eftir Jóni Baldvini þegar hann fyrstur vestrænna utanríkisráðherra viðurkenndi Eystrasaltsríkin. Gunnar Bragi er enginn Jón Baldvin!

Man ekki betur en að Gunnar Bragi hafi verið fyrir stuttu í klappkór Ólafs Ragnars forseta í kringum Vladimir Putin.  Aukin samskipti við Rússland og Kína áttu að koma í stað viðræðuslita við ESB.  Meiri bjánarnir!