Þvílíkur andskotans aumingi

Nú nálgast ég óðum fertugt.  Er barnlaus og einhleypur.  Á ekki nokkurn skapaðan hlut nema of feitan skrokkinn af sjálfum mér.  Er ekki einu sinni í vinnu eða námi.  Þvílíkur andskotans aumingi!

Eins og það sé ekki nóg, þá hóta læknar mér að ég þurfi bráðum að fara að sprauta mig með insúlínpenna ef ég tek mig ekki betur á.  Ég þurfi að grennast og léttast með hraði.  Annars fari nýrun að gefa sig.  Svo fæturnir.

Einhvern veginn er mér alveg sama.  Eru fjörtíu ár ekki bara fínn aldur?  Til hvers að hanga hérna eitthvað lengur?  Bara bull og vitleysa!

Ekki eins og það sé skemmtilegt að skrimta á atvinnuleysisbótum.  Skömmtun úr hnefa.  Þreyja þorrann og skammast sín fyrir að fá hvergi vinnu.

Einelti

Mikil umræða hefur verið í fjölmiðlum um einelti í grunnskólum.  Ég var tiltölulega heppinn því eldri bræður mínir héldu verstu föntunum í skefjum með vitneskjunni um sjálfa sig.  En þar með er ekki sagt að ég hafi sloppið fullkomlega við eineltið.  Það náði mér um tíma.

Ætla mér ekki að fjalla frekar um téð einelti hérna.  Látum nægja að ég hafi skrifað skilmerkilega um það fyrir skúffuna og er enn að vinna úr því.  Skil reyndar ekki enn af hverju ég lenti í einelti.  Hvað ég gerði til að ávinna mér slíka andúð skólafélaga minna?

Vissulega varð maður vitni að einelti í grunnskólanum.  Verst þótti mér að fylgjast með einelti stúlknanna.  Það var svo lúmskt og falið.  Tær sálfræði stefnt gegn stelpunum sem féllu ekki í hópinn.  Sumar af þeim höfðu það eitt til saka unnið að eiga erfitt heima fyrir.  Pabbinn kannski drykkfelldur eða fjárhagurinn slæmur.

Strákarnir voru ófeimnari og fóru beint gegn manni.  Engin miskun gefin.  Og hnefarnir látnir tala.  Stundum líka fætur.  Lymskuheit og feluleikur voru ekki fyrir hendi þegar strákarnir lögðu mig í einelti.

Einelti er oftast stundað af hópi gegn einstaklingi.  Annars gengur það varla upp.  Er frekar auðvelt að þagga niður í einum niðurrifsseggi.  Verra þegar hópur sækir að manni.

Féflettar

Maður var nýverið dæmdur í héraðsdómi fyrir að þýða assetts stripper sem féfletti. Fáráðlingarnir tveir sem hann nefndi í þessu sambandi höfðuðu mál og fengu niðurstöðuna sem þeir pöntuðu.  Gengur náttúrulega ekki að kalla fjárfesta féfletta. Slíkt er allt of nálægt sannleikanum.

Löngu orðið tímabært að dómstólar þessa lands hætti að kóa með útrásarvíkingum og féflettum hrunsins.  Annars verður vopnuð bylting og háttsettir hausar fá að fjúka.  Bókstaflega!