Kosningar núna!

Sigurður Ingi og Bjarnabófinn vilja ekki á það hlusta. Kosningar verða í haust ef þeir fá að ráða. Svandís Svavarsdóttir er alveg til í kosningar í vor.

Ég vil kosningar núna. Til hvers að framlengja þetta óheilaga samstarf eitthvað lengur. Hvað þá eftir brotthvarf Katrínar sem var límið sem hélt þessu saman í heil sjö ár.

Þreytt

Meint tilræði við Trump eru orðin ansi þreytt. Öll til þess gerð til að auka fylgi hans gagnvart Harris. Tómatsósa á eyra og svo einhver rússneskur riffill með sjónauka. Come on. Hvaða heilvita einstaklingur trúir þessu!