Stök snilld að vera gangandi vegfarandi á gatnamótum Borgartúns og Kringlumýrarbrautar síðdegis í dag. Vanstilltir og geðvondir ökumenn flautandi í kór eins og fávitar á fólk sem festist milli ljósa. Hvað eiga þau að gera? Gufa upp í andrúmsloftið? Allar akreinar eru fullar. Eiga þau að aka upp á gangstéttina? Á mig!
Veðjað á framtíðina
Samál, samtök álframleiðenda á Íslandi, hljóta að eiga kristalkúlu sem sýnir úrslit næstu alþingiskosninga með Samfylkinguna í forsæti. Og veðja því samkvæmt á að ráða Guðríði Eldey Arnardóttur sem framkvæmdastjóra. Fyrrum oddvita Samfylkingarinnar í Kópavogi. Svo ekkert vesen verði frá næstu vinstristjórn.
Blaz Roca vs. Prettyboitjokko
Valið á milli þessara tveggja er auðvelt. Erpur alla daga. Gaur sem kann að semja gott rapplag ólíkt dekurdrengnum úr Hafnarfirðinum sem ákvað einn daginn að hann yrði að verða poppstjarna þótt hann hefði fátt til brunns að bera nema fjárhagslegan stuðning afa síns.
Patrekur þykist betri gaur en Erpur því hann setti tappann í flöskuna fyrir ári síðan. Því Erpur láti aðeins af drykkju mánuð á ári. Ef þú ert sami og jafnvel meiri fáviti og þú varst meðan þú drakkst, þá er til lítils unnið og þú hefur ekkert efni á að gagnrýna aðra sem enn njóta lystisemda áfengra drykkja.