

Hoppaði upp í leið fimmtán við Landsspítalann eftir heimsókn til blóðsugna á leið upp í vinnu. Ekkert mál þar til gaurinn við stýrið tók að öskra á okkur að skipta um vagn.
Svona er bara að ferðast með strætó. Tómt vesen og stress. Maður veit aldrei hverju er von á. Hvernig verður næsta ferð?
Útkastarar verða settir í vagna strætó eftir áramót til að sekta og fleygja út farþegum sem svíkjast um að greiða rétt fargjald. Sem sagt ef Klappið virkar ekki, þá verður manni fleygt öfugum út með látum. Jeeiiii! Og nota bene, Klappið virkar ekki!
Eins og það sé ekki nógu leiðinlegt að ferðast með þessu fyrirtæki. Væri ekki bara ódýrara að gefa frítt í strætó og losa sig við dyraverðina og Klappið? Og nokkra bílstjóra í leiðinni sem eru augljóslega tæpir á geði.