Einn flokkur skipar þau öll

Hver á fætur öðrum birtast þeir útilokuðu í viðtölum hjá hvorum öðrum eða með sigur í Landsrétti upp á vasann; dauð og ómerk ummæli og tæpa milljón í vasann í miskabætur.

Ótrúlegt en satt þá vilja tveir kvendómarar og einn karldómari halda möguleikanum opnum að fullorðnir fái að riðlast á stúlkum allt niður í fimmtán ára aldur án afleiðinga.

Þeir útilokuðu eru frjálsir til að halda áfram að vera fávitarnir sem þeir eru gagnvart stúlkubörnum og konum. Guði sé lof fyrir þriðja dómstigið sem er jafnt spillt og vitlaust og hin tvö. Allir dómarar skipaðir af sama flokknum.

Í opinn dauðann

„Ours is not to reason why; ours is but to do and die“ muldrar Corporal Upham þegar nokkrir landgönguliðar rölta um sveitir Frakklands í leit að Private Ryan því þrír bræður hans höfðu mætt skapara sínum og móðir hans átti skilið að fá einn son heim úr stríðinu.

Upprunalegi textinn er úr ljóðinu The Charge of the Light Brigade eftir Lord Alfred Tennyson um breska hersveit í Krímstríðinu 1854 sem gekk í opinn dauðann vitandi um örlög sín fyrirfram:

Half a league, half a league,
⁠Half a league onward,
All in the valley of Death
⁠Rode the six hundred.
„Charge,“ was the captain’s cry;
Their’s not to reason why,
Their’s not to make reply,
Their’s but to do and die,

Into the valley of Death
⁠Rode the six hundred.

Herra Hroki

Ömurlegt að horfa upp á hrokann í utanríkisráðherra gagnvart mjög einfaldri spurningu frá norskum blaðamanni sem því miður bakkaði eins og auli og leyfði Bjarna að komast upp með yfirganginn.

Rétt eins og flest allir virðast gera hérna á Klakanum. Bakka og bugta sig fyrir frekjunni í Engeyjarprinsinum. Vinstri-Græn verða að fara að slíta þessum þremur ríkisstjórnum. Maðurinn er við það að springa úr frekju.

Varla ætlar Katrín að hanga þarna mikið lengur? Sást vel hve sár og vonsvikin hún var með að Bjarni tók upp á sitt einsdæmi að sitja hjá við atkvæðagreiðsluna um vopnahlé á Gaza. Blessunin ætti bara að þiggja einhverja góða stöðu út í heimi, skrifa fleiri góðar glæpasögur og njóta lífsins. Hætta þessu stjórnmálavafstri.

Sex ár af því að éta skít eru sex árum fleiri en ég hefði trúað að Vinstri-Græn gætu torgað. Tvö ár í viðbót af þessu er vonlaust ástand fyrir þjóðina. Verðum að fá frí frá Sjálfstæðisflokknum. Megum ekki við meira sukki í bili. Eða Bjarna Ben. Er ekki hægt að gera hann að sendiherra Íslands í Florida!