Svefn

Dugnaður minn felst helst í því að gera nákvæmlega ekki það sem læknar ráðleggja mér. Nema að nota lyfin sem þeir skrifa upp á. Geri slíkt samviskusamlega. En að borða betur eða nota svefnvél gegn kæfisvefni…neeeiiii. Óþarfi. Kemur mér ekki við.

Og það er sennilega að læðast upp að mér. Skrokkurinn er hættur að hlýða mér. Geng um haltur, skakkur og skældur. Komst ekki upp úr rúminu í dag fyrr en seint og síðar, og þá með erfiðismunum. Lagði mig aftur og náði loks smá hvíld. Leið strax betur. Eftir samtal við sjálfan mig er niðurstaðan að ég fæ sennilega ekki nægan og nógu góðan svefn. Eða það er kenning mín.

Ætla að skella á mig nefgrímunni um leið og ég leggst á koddann í kvöld. Lítil fórn fyrir djúpsvefn og góða hvíld fyrir skrokkinn sem verður að fá að endurnýja sig á nóttunni. Nenni svona fötlun ekki. Er bara fimmtugur. Sjáum til hvort að mér fari ekki að líða betur og skrokkurinn að virka á ný.

Í skjóli nætur

Sérsveitin lætur til skarar skríða í nótt gegn ungu konunum tveimur í Hvali 8 og 9. Sannið þið til. Fáir á ferli og þær sennilega sofandi.

Get samt ekki annað en dáðst að hugrekki þeirra, þó þær séu að brjóta lög sem ættu að vernda hvalina en ekki morðóðan gamlingja með sterk tök á flokknum sínum.

Auðvitað eru þær bara að tefja í smástund svo skip frá Sea Shepherd nái að sigla á móti hvalskipunum og trufla fjöldamorð á hvölum af alvöru.

Hannes rændur af múslimum

Móðir og dætur í múslimabúningi rændu handfarangri af Hannesi Hólmsteini í Fríhöfninni. Eða svo segir hann eftir að hafa öskrað að þær ættu ekki að fá að koma inn í landið og heimtað að þær yrðu handteknar af flugvallarlögreglunni. En einhver vitni höfðu aðra sögu að segja og kalla hann rasista.

Er nema von að maður sem hefur fengið allt upp í hendurnar frá flokknum sínum, heimti meira þegar kona tekur töskuna hans í misgripum. Auðvitað vandræðalegt að geta ekki haft auga með farangrinum þínum meðan þú ert að versla vín, nammi og tóbak. Kannski ertu bara svona slompaður eftir alla rauðvínsdrykkjuna í vélinni. Hver veit?

Annars er staða Hannesar vonlaus. Kannski ætluðu mæðgurnar sér alltaf að hnupla frá honum fartölvunni og farsímanum meðan hann var að horfa annað. Hver veit. Hannes er alltaf búinn að tapa fyrir fram gagnvart góða fólkinu. Verandi hann.